16.02.2024 Rafrænn kynningarfundur NGK Rafrænn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 20. febrúar klukkan 15:30. Skráðu þig á fundinn og fáðu að vita meira um þennan spennandi valkost í námi. Skráning á fund Umsóknarfrestur um nám í NGK bekknum rennur út 1. mars. Fjórir framhaldsskólar, Gribskov Gymnasium í Danmörku, GUX Sisimiut á Grænlandi, Miðnám á Kambsdali í Færeyjum og Verzlunarskóli Íslands, standa saman að framsæknu samstarfsverkefni um 3ja ára nám til stúdentsprófs af náttúrufræðibraut. Um er að ræða einstaka námsbraut með sérstaka áherslu á norðurskautstækni. Verkefnið felur í sér að mynda blandaðan framhaldsskólabekk með nemendum frá öllum fjórum löndunum. Í þennan bekk innritast nemendur sem ljúka 10. bekk nú í vor. Nemendur útskrifast með fullkomlega gilt danskt stúdentspróf og fer kennslan fram á dönsku.