14.09.2012 Ragnar Már sigraði á sterku golfmóti Ragnar Már Garðarsson, nemendi í 4-U, bar í gær sigur úr býtum á Duke of York-golfmótinu. Það þykir mikið afrek að vinna mótið, en það er eitt sterkasta unglingamót sem haldið er á hverju ári. Efnilegustu kylfingar Evrópu taka þátt á Duke of York mótinu en aðeins landsmeistarar unglinga fá keppnisrétt á mótinu. Mótið var spennandi en Ragnar Már stóð að lokum uppi sem sigurvegari eftir þriggja holu bráðabana. Verzlunarskólinn óskar Ragnari til hamingju með glæsilegan árangur. Andrew Bretaprins afhenti Ragnari verðlaunin