29.05.2012 Signý Malín á leið á Ólympíuleikana í efnafræði Signý Malín Pálsdóttir (6-U) er á leiðinni á Ólympíuleikana í efnafræði sem fara fram dagana 21. – 30. júlí. Signý komst í úrslit Landskeppninnar í efnafræði sem fór fram í vor. Í úrslitunum náði hún þeim árangri að vera á meðal efstu keppenda og fékk fyrir vikið farmiða á Ólympíuleikana sem verða haldnir í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington DC. Þetta er frábær árangur hjá Signýju og óskum við henni góðs gengis á leikunum. Heimasíða Efnafræðifélags Íslands