13.08.2026 Skólasetning nýnema Þann 18. ágúst næstkomandi er skólasetning nýnema í hátíðarsal skólans (Bláa sal) á 2. hæð klukkan 10:00. Þar fá nemendur kynningu á skólanum ásamt því að hitta umsjónarkennara sína. Einnig verður tekin einstaklingsmynd af hverjum og einum sem notuð verður á INNU. Gera má ráð fyrir að kynningin taki um tvo tíma. Að henni lokinni geta nemendur keypt bækur í bóksölunni sem staðsett er á bókasafni skólans (4. hæð) og nýtt sér tölvuaðstoð á Marmaranum. Mikilvægar upplýsingar fyrir nýnema: Stundatöflur eru aðgengilegar á INNU. Til að komast á INNU eru notuð rafræn skilríki. Athugið að stundatöflur geta breyst lítilega fyrstu dagana. Nemendur sjá núna bekkinn sinn á INNU. Við höfum þegar fengið óskir um bekkjarskipti en við færum engan á milli bekkja eða hópa í þriðja tungumáli. Námsráðgjafar taka á móti óskum um bekkjaskipti sem verða skoðuð í lok annar. Bókalistar eru aðgengilegir á INNU undir áföngunum en einnig er hægt að nálgast heildarlista á heimasíðu skólans. Bóksala fer fram á bókasafni skólans og hægt verður að kaupa bækur eftir kynninguna og síðan fyrstu þrjá skóladagana. Við hvetjum nýnema til að koma með fartölvuna sína í skólann á þriðjudaginn. Tölvuaðstoð verður í boði á Marmaranum og gott er að tengjast neti skólans og prófa að fara inn á svæðið sitt áður en kennsla hefst. Lykilorð fyrir tölvukerfi skólans verður sent til nýnema á einkanetföngin í lok þessarar viku. Það er lykilorðið sem þið notið til að tengjast netinu og komast á svæðið ykkar. Allir nemendur fá @verslo.is netfang sem þeir nota á meðan þeir eru í skólanum. Allar upplýsingar frá skólanum fara á þessi netföng. Við hvetjum nemendur til að kíkja reglulega á heimasíðu skólans, einnig er skólinn á Facebook og Instagram. Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema má finna hér á heimasíðu skólans.