Sóttvarnarhólf - mæting í stofur
Skólanum er skipt upp í 8 hólf vegna fjöldatakmarkana. Hvert hólf hefur sinn sérstaka inngang (og sama útgang) og það má ekki fara aðra leið inn í skólann en þá sem tilheyrir hólfinu. Aldrei eru fleiri en tveir bekkir saman í sóttvarnarhólfi. Hverjum bekk er skipt í tvær stofur og eru einungis 14 nemendur í hvorri stofu.
Hólfin eru eftirfarandi:
- Hólf 1: stofur 4-5 og 6-7 (4. hæð): Inngangur á Marmara og beint upp í stigahúsið á vinstri hönd.
- Hólf 2: stofur, 11-12, 13-14 (4. hæð): Gengið inn hjá nemendakjallara og beint upp á 4. hæð.
- Hólf 3: 401-406, 402-405 (4. hæð): Gengið inn hjá bílastæði kennara og þaðan inn í nýbyggingu
- Hólf 4: Salts-SH og SÍF-VR (3. hæð): Inngangur á Marmara og beint í stigahúsið á vinstri hönd
- Hólf 5: 301-306, 302-305 (3. hæð): Gengið inn hjá bílastæði kennara og þaðan inn í nýbyggingu
- Hólf 6: Hagkaup-Hafskip, Eimskip-Flugleiðir (2. hæð) : Gengið inn hjá íþróttahúsi/vaktmanni
- Hólf 7: 201-206, 202-205 (2. hæð): Inngangur fyrir aftan hús, milli Versló og Verkís. Farið upp um brunastigann.
Athugið að nemendur mega alls ekki fara á milli sóttvarnarhólfa. Það er til þess að minnka líkur á hópsmiti ef upp kemur smit á innan skólans. Einnig er mikilvægt smitrakning gangi vel ef upp kemur grunur um smit á meðal nemenda.