Stærðfræðikennari

Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða stærðfræðikennara í 100% starf fyrir skólaárið 2020-2021.

Hæfnikröfur:

  • Háskólapróf í stærðfræði. 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Við bjóðum:

  • Góða vinnuaðstöðu.
  • Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen starfsmanna –og þróunarstjóri gunninga@verslo.is Umsóknarfrestur er til 8. apríl og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@verslo.is 

Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 930 nemendur. Skólinn er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.

Aðrar fréttir