Stafræni háskóladagurinn

Stafræni Háskóladagurinn verður haldinn 26. febrúar kl. 12-15.

Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi.

Á vefsíðunni www.haskoladagurinn.is gefst einstakt tækifæri til að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum.

Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða tilbúnir til að spjalla við gesti dagsins í netspjalli.

Það verður hægt að komast í beint samband við fulltrúa frá öllum námsleiðum í grunnnámi háskólanna og um að gera að nýta tækifærið og spyrja um hvaðeina sem lýtur að drauma náminu og eiga samtal um námsleiðirnar og háskólalífið.

Aðrar fréttir