19.03.2021 Til hamingju Verzló Verzlunarskóli Íslands vann úrslitaviðureign Gettu betur í kvöld gegn Kvennaskólanum í Reykjavík. Strax eftir hraðaspurningarnar hafði liðið fjögurra stiga forskot og lauk keppninni með 31 stigi gegn 17. Í liði Verzlunarskólans voru þau Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Eiríkur Kúld Viktorsson og Gabríel Máni Ómarsson. Skólinn óskar liðinu til hamingju með þennan frábæra árangur en þetta er fyrsti sigur Verzlunarskólans í keppninni í 17 ár. Til hamingju!