Tveir fyrrverandi nemendur VÍ fengu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ

Á mánudaginn síðastliðinn tóku tveir fyrrverandi nemendur Verzlunarskólans, þau Auðun Bergsson og Kolbrún Sara Haraldsdóttir, við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum.

Verzlunarskólinn óskar þeim til hamingju. 

Aðrar fréttir