Tveir fyrrverandi nemendur VÍ fengu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ

Fyrrverandi Verzlunarskólanemendurnir Andrea Erla Guðmarsdóttir og Lýður Þór Lýðsson voru á meðal þeirra 29 nýnema við Háskóla Íslands sem hlutu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi.

Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum. Verzlunarskólinn óskar þeim til hamingju með glæsilegan árangur og velfarnaðar í háskólanáminu.

Á myndinni eru Andrea Erla og Lýður Þór ásamt Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands.

Aðrar fréttir