Undirbúningsnámskeið í stærðfræði fyrir nýnema

Til þess að tryggja sem jafnastan undirbúning nemenda í stærðfræði verður boðið upp á sérstakt undirbúningsnámskeið (STÆ-Undirbúningur) fyrir nýnema.

Námskeiðið er í tveimur hlutum:

1. hluti: nemendur taka gagnvirkar kannanir á netinu fyrir miðvikudaginn 28. júní. Niðurstöður þeirra verða notaðar til að raða nemendum í hópa (niðurstöðurnar gilda ekki til einkunna, þær eru einungis tæki fyrir okkur til að reyna að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir)

2. hluti: staðlota í húsnæði Verzlunarskólans (einungis fyrir þá sem ljúka 1. hluta tímanlega)

mán 14. ágúst kl: 9-12

þri 15. ágúst kl: 9-12

mið 16. ágúst kl: 13-16

Staðlotan endar á skriflegu prófi, þeir sem ná prófinu fá eina einingu fyrir námskeiðið

Námskeiðið verður í umsjá stærðfræðikennara skólans. Farið verður yfir brotareikning, þáttun, jöfnur og rúmfræði. Námskeiðið er valfrjálst en sem viðmið eru hér nokkur dæmi sem eru sambærileg þeim sem farið verður í á námskeiðinu. Svör við dæmunum má nálgast hér . Geti nemandi leyst dæmin með góðu móti er hann hugsanlega með næga færni og getur sleppt námskeiðinu.

Skráning fer fram á heimasíðu fjarnámsins . Athugið, að skráningu lokinni þarf að smella á hnappinn „staðfesta og senda inn umsókn“ og fær viðkomandi þá tölvupóst um leið. Síðasti dagur til að skrá sig á námskeiðið er mánudagurinn 26. júní. Námskeiðið er nemendum að kostnaðarlausu.

Aðrar fréttir