Upplýsingamolar
Nýr taktur er kominn í skólastarfið með lokaprófum og skilum á síðustu verkefnum annarinnar.
Hér fylgja nokkrir gagnlegir upplýsingamolar.
- Próftafla dagskóla og fjarnáms er aðgengileg á heimasíðu skólans og bendum við á að skoða vel tímasetningu fyrir hvert próf.
- Opnunartími bókasafnsins og skólans á prófatíma er lengdur og má finna allar upplýsingar hér.
- Opnað verður fyrir námsmat nemenda á INNU mánudaginn 19. desember klukkan 20:00. Þann dag geta nemendur einnig séð stundatöflu vorannar og bókalista.
- Prófsýning verður haldin í skólanum þriðjudaginn 20. desember frá klukkan 8:30 til 10:00. Nemendur geta þá komið og hitt sína kennara og skoðað lokapróf og annað námsmat úr áföngum annarinnar.
Prófsýning fjarnáms er á sama tíma. Þeir nemendur sem þurfa að endurtaka áfanga eru sérstaklega hvattir til að koma og taka mynd af prófúrlausn sinni.
Ef nemandi sem fellur á lokaprófi kemst ekki á prófsýningu getur hann haft samband við sinn kennara fyrir prófsýningardaginn og óskað eftir að fá afrit af lokaprófi sent í tölvupósti.
- Þeir nemendur sem ekki ná tilskildum árangri í einstaka greinum eru sjálfkrafa skráðir í endurtektarpróf í janúar.
Við minnum á skólareglur varðandi námsframvindu en þar segir að nemandi hafi þrjú tækifæri til að ljúka áfanga, endurtektarpróf í janúar er tækifæri númer 2, hvort sem nemandinn nýtir endurtökuréttinn eða ekki.
Þeir sem ekki ná að ljúka áfanga í endurtöku þurfa að skrá sig í fjarnám skólans í viðkomandi áfanga og taka hann samhliða dagskólanum á vorönn.
- Endurtektarpróf fara fram 3., 4. og 5. janúar. Próftafla endurtektarprófa verður birt á heimasíðu skólans 20. desember.
- Skólastarf hefst aftur á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar með kennslu samkvæmt stundaskrá.
Starfsfólk skólans sendir ykkur bestu óskir um gleðilega hátíð með kærri þökk fyrir samveruna á önninni sem er að líða.