14.12.2016 Birting einkunna, prófsýning, sjúkra- og endurtektarpróf Sjúkrapróf eru á föstudaginn hjá öllum bekkjum. Prófað er klukkan 8:30. Einkunnir verða birtar í INNU mánudagskvöldið 19.des. Þriðjudaginn 20.des verður prófsýning í skólanum frá klukkan 10:00 til 11:30. Nemendum gefst þá kostur á að koma og skoða prófin sín. Í prófsýningunni má taka myndir af prófinu sínu og eru nemendur sem þurfa að endurtaka áfanga hvattir til að gera það. Kennsla hefst miðvikudaginn 4.janúar samkvæmt stundaskrá. Nemendur sjá nýjar stundatöflur á INNU í næstu viku. Endurtektarpróf verða haldin 4. 5. og 6. janúar. Prófin eru haldin klukkan 16:00. Nemendur eru ekki í fríi frá skóla þessa daga þó þeir þurfi að taka próf. Bókasafnið verður opið 4. og 5. janúar frá 8-22.