Forvarnir og félagslíf

Forvarnastarf er vaxandi þáttur í starfi Verzlunarskólans og vill skólinn með starfinu stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri sjálfsmynd nemenda. Áhersla er lögð á öflugt vímuefnalaust félagslíf sem er mikilvægur þáttur í forvörnum.

Forvarnarfulltrúi

Hlutverk forvarnafulltrúa er m.a. að sjá um skipulagningu forvarnastarfs skólans sem felst í því að fræða nemendur um skaðsemi áfengis, tókbaks og vímuefna og að ýta undir heilbrigt félagslíf og sterka sjálfsmynd nemenda. Til forvarnafulltrúa er hægt að leita í trúnaði með hverskyns mál er tengjast forvörnum nemenda.

Reglur skólans um tóbak og vímuefni
  • Notkun tóbaks (reyktóbak, neftóbak og munntóbak) er stranglega bönnuð í húsakynnum skólans og á lóð hans.
  • Stranglega er bannað að hafa um hönd áfengi og önnur vímuefni eða vera undir áhrifum þeirra í húsnæði skólans og á lóð hans.
  • Neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á öllum samkomum og ferðalögum sem eru í nafni skólans.
  • Notkun á rafrettum er bönnuð í húsakynnum skólans og á lóð hans. Þá eru rafrettur einnig bannaðar á samkomum og ferðalögum sem eru í nafni skólans.
Félagslífsfulltrúar

Félagslífsfulltrúar vinna meðal annars að fjölbreyttu félagslífi með nemendum og skipuleggja umsjón og eftirlit með samkomum nemenda skólans. Forvarna- og félagslífsfulltrúar eru viðstaddir flesta atburði á vegum skólans sem gæsluaðilar. Til félagslífsfulltrúa er hægt að leita í trúnaði með hverskyns mál er tengjast félagslífi nemenda.

Ingunn Björg Arnardóttir

Ingunn Björg Arnardóttir

Íslenska / félagslífsfulltrúi

ingunn@verslo.is

5900617

Fannar Guðmundsson

Fannar Guðmundsson

Í leyfi

fannar@verslo.is

5900634