ALÞJ2FL05

Félagsleg landafræði

  • Einingar5

Í félagslegri landafræði er verið að skoða heiminn með tilliti til þess hvernig við notum jörðina, fjölbreytileika þeirra menninga sem mennirnir hafa skapað og hvernig umhverfið hefur mótað samfélög manna. Fólksfjölgun og áskoranir tengdar henni eru skoðaðar ásamt því sem…

  • Í félagslegri landafræði er verið skoða heiminn með tilliti til þess hvernig við notum jörðina, fjölbreytileika þeirra menninga sem mennirnir hafa skapað og hvernig umhverfið hefur mótað samfélög manna.
  • Fólksfjölgun og áskoranir tengdar henni eru skoðaðar ásamt því sem áhrif hnattvæðingar eru skoðaðar í þaula.
  • Nemendur kynna sér borgarskipulag og mikilvægi borga í heiminum. Ásamt þessum alþjóðlegu viðfangsefnum er einnig settur fókus á landafræði Íslands ásamt því nemendur skoða landið út frá auðlindum þess með sérstakri áherslu á tækifærum Íslands sem ferðamannaland.
  • lokum þurfa nemendur einnig kunna skil á landaskipan í heiminum og þekkja helstu náttúrufyrirbrigði á korti.
  • Kennsluaðferðir eru margvíslegar. Samræður, fyrirlestrar kennara, verkefnavinna og kynningar nemenda.
  • Gert er ráð fyrir nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu. 

Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum greinarinnar. 

  • Þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun. 

  • Helstu gerðir og hlutverk borgarskipulags. 

     

  • Menningu og hvernig umhverfið mótar menninguna. 

  • Kenningum um mannfjöldabreytingar. 

  • Landaskipan heimsins ásamt ýmsum áfangastöðum ferðamanna á Íslandi. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita skilvirkum vinnubrögðum og sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf.

  • Taka þátt í umræðu og greina landfræðileg málefni á gagnrýninn hátt. 

  • Nota lykilhugtök fræðigreinarinnar. 

  • Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna. 

  • Lesa almennar upplýsingar úr landakortum hvað varðar vegalengdir, hæðarlínur og staðsetningu ýmissa þátta svo sem stærð þorpa og bæja, vegakerfi og samgöngur. 

  • Skilgreina og nota mikilvæg lýðfræðileg hugtök, t.d. aldursskiptingu, fæðingar- og dánartíðni, barnadauða, meðalævi, lífslíkur, offjölgun og búsetumynstur. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í málefnalegum umræðum. 

  • Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt. 

  • Efla siðferðilega dómgreind sína. 

  • Greina áhrif umhverfis, sögu og menningar á stöðu ríkja í alþjóðasamfélaginu. 

  • Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum. 

  • Tileinka sér gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð í faginu. 

  • Gera sér grein fyrir samspili viðhorfa, umburðalyndis og fordóma. 

  • Auka framtíðarmöguleika sína í áframhaldandi námi eða starfi og daglegum viðfangsefnum. 

  • Finna, meta og greina heimildir og nýta þær í hagnýtum tilgangi.  

  • Gera þætti um málefni er snúa að landafræðilegum viðfangsefnum.