ALÞJ2IA05

Alþjóðafræði II: Evrópufræði

  • Einingar5

Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið og valdir þættir þess skoðaðir. Fjallað er um þróun evrópskrar samvinnu á síðustu áratugum og þátttöku Íslands á því sviði. Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu. Nemendur taka…

  • Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið og valdir þættir þess skoðaðir.
  • Fjallað er um þróun evrópskrar samvinnu á síðustu áratugum og þátttöku Íslands á því sviði.
  • Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu.
  • Nemendur taka sjálfstæða afstöðu til námsefnisins í margvíslegri verkefnavinnu.
  • Gert er ráð fyrir nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og vinnu. 

Grunnskólapróf

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum greinarinnar.

  • Þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun.

  • Réttindum og skyldum í alþjóðasamfélaginu og takmörkunum þeirra.

  • Helstu alþjóðastofnunum og -samtökum, sögu þeirra og tilgangi.

  • Þróun og sögu evrópsks samstarfs og þátttöku Íslendinga í því.

  • Réttindi og skyldur sem fylgja þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.

  • Vinna á skilvirkan hátt, sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf.

  • Verja og rökstyðja afstöðu sína.

  • Taka þátt í umræðu og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt.

  • Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.

  • Beita upplýsingatækni við þekkingarleit.

  • Vinna með nemendum frá öðrum löndum.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í málefnalegum umræðum. 

  • Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.

  • Útskýra viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum.

  • Greina áhrif umhverfis, sögu og menningar á stöðu ríkja í alþjóðasamfélaginu.

  • Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum.

  • Að draga rökstuddar ályktanir um evrópska samvinnu.

  • Að stunda samskipti við og vinna með nemendum frá öðrum Evrópulöndum.

  • Auka framtíðarmöguleika sína í áframhaldandi námi eða starfi og daglegum viðfangsefnum.