BÓKF1BR05

Bókfærsla og rekstrarhagfræði

  • Einingar5

Bókfærsluhluti áfangans byggist á verkefnavinnu nemenda, dæmatímum og fyrirlestrum. Til að byrja með vinna nemendur verkefnin í dagbók til að ná undirstöðuatriðum bókfærslunnar og temja sér rétt vinnubrögð. Þegar náðst hefur skilningur á færslu bókhalds eru verkefnin unnin í Excel.…

  • Bókfærsluhluti áfangans byggist á verkefnavinnu nemenda, dæmatímum og fyrirlestrum.
  • Til að byrja með vinna nemendur verkefnin í dagbók til að ná undirstöðuatriðum bókfærslunnar og temja sér rétt vinnubrögð.
  • Þegar náðst hefur skilningur á færslu bókhalds eru verkefnin unnin í Excel.
  • Kennslustundirnar eru að mestu verklegar, þ.e. að nemendur vinna sjálfstætt og í hópum.
  • Lögð er áhersla á að nemendur skilji hugsunina á bak við tvíhliða bókhald, læri að færa inn dagbókarfærslur viðkomandi tímabils og geti svo gert upp viðkomandi tímabil.
  • Rekstrarhagfræðihluti áfangans byggist einnig mikið á verkefnavinnu en líka fyrirlestrum og umræðum.
  • Lögð er áhersla á útreikning og túlkun efnisins.
  • Í áfanganum eru mismunandi kostnaðarhugtök kynnt, útreikingar á núllpunkti, túlkun á kennitölum og gerð einfaldra fjárhagsáætlana.

Námsmat áfangans byggir á skilaverkefnum nemenda, skyndiprófum og lokaprófi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnhugtökum bókfærslu.

  • Helstu kostnaðar- og tekju hugtökum rekstrarhagfræðinnar.

  • Einfaldri áætlanagerð.

  • Hvernig tvíhliða bókhald virkar.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Setja fram tvíhliða bókhald.

  • Færa einfalt uppgjör.

  • Setja fram einfaldan efnahags- og rekstrarreikning.

  • Reikna út kostnað, tekur, afkomu og núllpunkt.

  • Reikna framlegð.

  • Gera einfaldar rekstrar- og greiðsluáætlanir auk áætlaðan efnahagsreikning.

  • Reikna út algengar kennitölur.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil.

  • Stilla upp prófjöfnuði.

  • Gera einfaldar lokafærslur fyrir uppgjör.

  • Útfæra einfaldar launafærslur.

  • Búa yfir skilningi á mismunandi kostnaði fyrirtækja.

  • Skilja samhengi í rekstri fyrirtækja og mikilvægi áætlanagerðar.

  • Skilja og túlka tölulegar upplýsingar sem varða rekstur fyrirtækja.

  • Túlka niðurstöður kennitöluútreikninga.

  • Gera sér grein fyrir verðmætasköpun fyrirtækja.