BÓKF2BT05

Framhaldsáfangi í bókfærslu og tölvubókhald

  • Einingar5

Í áfanganum læra nemendur að færa flóknara bókhald bæði dagbókarfærslur og uppgjör, færa endurmat fyrirtækja og uppgjör á T-reikningum. Einnig læra nemendur um skuldabréf og afföll sem þeim tengjast og verðtryggingu skuldabréfa. Kynnt er hvernig nota má upplýsingakerfi á borð…

  • Í áfanganum læra nemendur að færa flóknara bókhald bæði dagbókarfærslur og uppgjör, færa endurmat fyrirtækja og uppgjör á T-reikningum.
  • Einnig læra nemendur um skuldabréf og afföll sem þeim tengjast og verðtryggingu skuldabréfa.
  • Kynnt er hvernig nota má upplýsingakerfi á borð við Microsoft Dynamics Nav til færslu bókhalds.
  • Nemendur kynnast ótvíræðum kostum þess að færa bókhald með aðstoð tölvu.
  • Helstu kerfi eru kynnt svo sem fjárhags-, viðskipta-, sölu-, birgða-, lánadrottna- og launakerfi ásamt því hvernig kerfin mynda eina heild.
  • Kennsla byggist á innlögn kennara, umræðum, dæmatímum og verkefnavinnu.
  • Lögð er áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og geri sér grein fyrir eigin ábyrgð.
  • Nemendur vinna mest sjálfstætt, einir eða í hóp.

Í áfanganum er lokapróf sem samanstendur af skriflegu prófi og prófi sem leyst er á tölvu. Lokaprófið gildir á móti ýmis konar vinnu, skyndiprófum og verkefnum sem og ástundun nemandans.

BÓKF1BR05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mati vörubirgða.

  • Bókhaldslegri meðferð skuldabréfa og hlutabréfa.

  • Mismunandi réttarformi fyrirtækja.

  • Mismunandi afskriftarreglum.

  • Vísitölu og verðbótum.

  • Sölu og sameiningu fyrirtækja.

  • Uppsetningu bókhaldslykils, vörunúmera, viðskiptamanna og lánadrottna.

  • Uppsetningu kennitalna til upplýsingaöflunar úr bókhaldi.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Reikna meðalálagninu vörubirgða.

  • Reikna og bóka verðbætur, vexti og afborganir af skuldabréfum.

  • Reikna og bóka afföll skuldabréfa.

  • Bóka færslur sem tengdar eru hlutabréfaeign.

  • Reikna og bóka arðgreiðslur.

  • Nota viðskiptahugbúnað til færslu fjárhags-, sölu-, viðskipta-, birgða- , lánadrottna-og launabókhalds og skilji tengsla kerfanna.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Færa bókhald.

  • Vinna sjálfstætt.

  • Starfa með viðskiptahugbúnað, sér í lagi upplýsingakerfið Microsoft Dynamics Nav.

  • Afla gagna og vinna með upplýsingar úr bókhaldi svo sem að finna afkomutölur fyrir tiltekið tímabil, sölu- og framlegðartölur fyrir einstakar vörutegundir, prenta skuldalista og launaseðla o.s.frv.

  • Stofna nýja bókhaldslykla.