BÓKF2BT05

Framhaldsáfangi í bókfærslu og tölvubókhald

  • Einingar5

Í áfanganum læra nemendur að færa ítarlegra bókhald og vinna bæði með dagbókarfærslur og reikningsjöfnuð. Nemendur læra um hlutabréf, skuldabréf, verðtryggingu, erlend viðskipti, gengishagnað og -tap.  Einnig er farið í laun og launabókhald, hlutafé og arðgreiðslur.  

  • Í áfanganum læra nemendur að færa ítarlegra bókhald og vinna bæði með dagbókarfærslur og reikningsjöfnuð.
  • Nemendur læra um hlutabréf, skuldabréf, verðtryggingu, erlend viðskipti, gengishagnað og -tap. 
  • Einnig er farið í laun og launabókhald, hlutafé og arðgreiðslur.  

Í áfanganum er lokapróf sem samanstendur af skriflegu prófi og prófi sem leyst er á tölvu. Lokaprófið gildir á móti ýmis konar vinnu, skyndiprófum og verkefnum sem og ástundun nemandans.

BÓKF1BR05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mati vörubirgða. 

     

  • Bókhaldslegri meðferð skuldabréfa og hlutabréfa. 

  • Mismunandi félagaformi fyrirtækja. 

  • Afskrfitir og fyrningu fastafjármuna. 

  • Vísitölur og verðbætur. 

  • Erlend viðskipti, gengishagnað og -tap. 

  • Hlutafélagi og arðgreiðslum. 

  • Laun og launabókhald. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Reikna meðalálagninu vörubirgða.

  • Reikna og bóka verðbætur, vexti og afborganir af skuldabréfum. 

  • Reikna og bóka afföll skuldabréfa. 

  • Bóka færslur sem tengdar eru hlutabréfaeign. 

  • Reikna og bóka arðgreiðslur.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Færa bókhald. 

  • Vinna sjálfstætt.

  • Afla gagna og vinna með upplýsingar úr bókhaldi svo sem að finna afkomutölur fyrir tiltekið tímabil, sölu- og framlegðartölur.