BÓKF3SS05

Bókfærsla, sjóðstreymi og skattauppgjör

  • Einingar5

Nemendur læra að gera upp bókhald út frá takmörkuðum upplýsingum og um sameiningu fyrirtækja. Nemendur læra að setja upp sjóðstreymi og taka tillit til skattareglna í uppgjöri. Einnig læra þeir að meta gengi hlutabréfa. Kennslan byggist á innlögnum, umræðum, dæmatímum…

  • Nemendur læra gera upp bókhald út frá takmörkuðum upplýsingum og um sameiningu fyrirtækja.
  • Nemendur læra setja upp sjóðstreymi og taka tillit til skattareglna í uppgjöri.
  • Einnig læra þeir meta gengi hlutabréfa.
  • Kennslan byggist á innlögnum, umræðum, dæmatímum og verkefnavinnu.
  • Lögð er áhersla á nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og geri sér grein fyrir eigin ábyrgð.
  • Nemendur vinna mest sjálfstætt. 

Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, skyndiprófum, verkefnum og ástundun nemandans á önninni. Skriflega lokaprófið samanstendur af skattalegu uppgjör, sjóðstreymi, sameiningu fyrirtækja og ársreikningi út frá takmörkuðum upplýsingum.

BÓKF1BR05 og BÓKF2BT05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Skattareglum.

  • Raungengi og sameiningu fyrirtækja. 

  • Framsetningu sjóðstreymis. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Færa færslur og uppgjör með takmörkuðum upplýsingum.

  • Taka tillit til skattalegra ráðstafana. 

  • Endurskipuleggja fjárhagslegar eignir.

  • Sameina fyrirtæki. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Færa bókhald og gera upp reikninga með flóknum athugasemdum. 

  • Semja og ganga frá uppgjöri þar sem tekið er tillit til skattalegra ráðstafana. 

  • Setja fram og lesa úr sjóðstreymi. 

  • Vinna sjálfstætt.  

  • Gera sér grein fyrir ábyrgðinni á mikilvægi þess að halda rétt bókhald.