EFN203

Skriflegt lokapróf í lok annar gildir 70%. Áfangapróf, heimaverkefni, verklegt o.fl. gilda 30% Til að vinnueinkunn reiknist inn í lokaeinkunn þarf nemandi að hafa leyst 45% lokaprófsins rétt.

  • Að kynna nemendum undirstöðuatriði efnafræði sem þátt í heimsmynd nútímans og veita grunnþekkingu fyrir frekara nám á háskólastigi.

  • Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning. Auk þessar eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum kleift að hefja skýrslugerð og útreikninga jafnframt tilrauninni. Lögð er áhersla á að nemendur noti tölvuforrit við úrvinnslu niðurstaðna. Nemendum er ætlað að tileinka sér og öðlast skilning á efni kennslutexta og viðbótarefni sem fram kemur í kennslustundum. Einnig eiga þeir að ná tökum á skýrslugerðarformi og tölfræðilegri úrvinnslu gagna í verklegum tilraunum

  • Hraði efnahvarfa: framvinda efnahvarfa, árekstrakenningin, þættir sem hafa áhrif á hraða efnahvarfa, gangur efnahvarfa. Lotubundnir eiginleikar frumefna: lotubundin rafeindaskipan og svigrúmahýsing, rafeindaskipan jóna. Lögun, svigrúma og skautun sameinda, sameindalíkön, VSEPR byggingar, skautun tengja, blönduð einkenni tengja. Vökvar og föst efni: jónaefni og málmar, bræðslu- og suðumark sameinda, vetnistengi og van der Waalstengi, yfirborðsspenna og seigja vökva, eiginleikar vatns, föst efni (jóna-, sameinda- og málmkristallar, stórsameindir og myndlaus efni) og hamskipti.