EFNA3LT05

Efnafræði, lögun sameinda og tengi

  • Einingar5

Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning. Auk þessa eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum…

  • Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til.
  • Mikil áhersla er lögð á dæmareikning.
  • Auk þessa eru verklegar æfingar í raungreinastofu.
  • Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum kleift að hefja skýrslugerð og útreikninga jafnframt tilrauninni.
  • Lögð er áhersla á að nemendur noti tölvuforrit við úrvinnslu niðurstaðna.
  • Nemendum er ætlað að tileinka sér og öðlast skilning á efni kennslutexta og viðbótarefni sem fram kemur í kennslustundum.
  • Einnig eiga þeir að ná tökum á skýrslugerðarformi og tölfræðilegri úrvinnslu gagna í verklegum tilraunum.

Lokapróf, annarpróf, verklegar æfingar, heimadæmi.

EFNA2AE05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Skammtatölum, lögun og legu svigrúma, rafeindaskipan frumefna í grunnástandi.

  • Lotubundnum eiginleikum frumefna.

  • Lewis-myndum.

  • Lögun og skautun sameinda, VSEPR byggingum sameinda, svigrúmablöndun atómsvigrúma, sameindasvigrúmum (MO) tvíatóma sameinda.

  • Vökvum og föstum efnum: jónaefnum og málmum, veikum efnatengjum, hamskiptum.

  • Fasalínuritum.

  • Magnbundnum eiginleikum lausna.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Rita rafeindaskipan frumefna í grunnástandi.

  • Álykta um hlutfallslega stærð atóma og atómjóna.

  • Álykta um eiginleika frumefna út frá staðsetningu þeirra í lotukerfinu.

  • Rita Lewispunktaformúlur efna.

  • Reikna hvarfavarma út frá tengjaentalpíu.

  • Spá fyrir um lögun og skautun sameinda út frá VSEPR líkaninu og teikna þær í þrívídd.

  • Ákvarða svigrúmablöndun atóma í sameind.

  • Teikna MO myndir.

  • Útskýra eiginleika fastra efna og vökva út frá kröftum milli sameinda.

  • Túlka fasalínurit.

  • Framkvæma einfaldar verklegar æfingar í tilraunastofu.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Beita skipulegum aðferðum við úrlausn dæma.

  • Túlka orðadæmi og klæða þau í stærðfræðilegan búning.

  • Setja upp jöfnur og leysa þær með viðeigandi mælieiningum.

  • Leggja mat á úrlausnir sínar og álykta um hvort þær standist.

  • Beita gagnrýninni hugsun og sýn innsæi og útsjónarsemi við lausnir verkefna.

  • Skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær í rituðu máli.

  • Þróa skilning sinn á efnisheiminum.

  • Átta sig á hlutverki efnatengja í heiminum.

  • Víkka skilning sinn á því hvernig lögun efna hefur áhrif á efnahvörf og efniseiginleika.