ENSK2OM05

Orðaforði og málnotkun

  • Einingar5

Nemendur lesa almenna texta um margvísleg efni og orð og orðatiltæki eru skýrð á ensku og/eða þýdd á íslensku. Einnig eru kynnt hugtök sem tengjast verslun og viðskiptum. Verkefni eru unnin til að þjálfa nemendur í notkun á nýjum orðaforða…

  • Nemendur lesa almenna texta um margvísleg efni og orð og orðatiltæki eru skýrð á ensku og/eða þýdd á íslensku.
  • Einnig eru kynnt hugtök sem tengjast verslun og viðskiptum.
  • Verkefni eru unnin til að þjálfa nemendur í notkun á nýjum orðaforða sem kemur fyrir í lestextum.
  • Undirstöðuatriði enskrar málfræði, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið, eru rifjuð upp.
  • Ennfremur læra nemendur að skrifa vel skipulagðar efnisgreinar og ritgerðir auk þess að flytja erindi.
  • Ein stutt skáldsaga og nokkrar smásögur eru hraðlesnar og verkefni unnin úr því efni.
  • Ætlast er til þess að nemendur hafi öðlast hæfni B2 samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni.

Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum og öðrum verkefnum, ásamt lokaprófi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.

  • Hugtökum er tengjast verslun og viðskiptum.

  • Mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað.

  • Helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa margs konar texta og beita þeim lestraraðferðum sem eiga við.

  • Skilja mál sem talað er við mismunandi aðstæður.

  • Skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.

  • Taka virkan þátt í samræðum og segja frá á skýran hátt með því að beita viðeigandi orðaforða og málvenjum.

  • Nýta sér hjálpargögn, svo sem orðabækur, leiðréttingarforrit, tölvu- og upplýsingatækni eins og kostur er.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni.

  • Tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt.

  • Lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta.

  • Eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum.

  • Tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margs konar aðstæður.

  • Skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.

  • Skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig, til dæmis að skrifa vel uppbyggða ritgerð.

  • Nýta upplýsingatækni til upplýsingaöflunar og þjálfunar í notkun á tungumálinu.

  • Vinna með öðrum og stunda samvinnunám.