ENSK3EM05

Alþjóðatungumálið enska

  • Einingar5

Áfanginn byggist á þemavinnu með áherslu á skriflega og munnlega færni og gagnrýna hugsun. Honum er skipt upp í lotur og hefur hver lota ákveðið þema. Viðfangsefnin eru m.a. áhrif nýlendustefnu og þróun og hlutverk enskrar tungu sem alheimsmáls. Lesnar…

  • Áfanginn byggist á þemavinnu með áherslu á skriflega og munnlega færni og gagnrýna hugsun.
  • Honum er skipt upp í lotur og hefur hver lota ákveðið þema.
  • Viðfangsefnin eru m.a. áhrif nýlendustefnu og þróun og hlutverk enskrar tungu sem alheimsmáls.
  • Lesnar eru greinar, skáldsaga og smásögur sem eru greindar samkvæmt bókmenntalegri hefð. Smásögurnar endurspegla mismunandi menningarsamfélög enskumælandi landa.
  • Nemendur vinna einstaklings- para- og hópverkefni.
  • Kröfur eru gerðar um sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og sköpun.
  • Nemendur skipuleggja sjálfir vinnuferlið á meðan hlutverk kennarans er að vera leiðbeinandi.

Nemendur fá eina einkunn í lok áfangans sem samanstendur af ástundun og virkni, skyndiprófum/verkefnum og skriflegu lokaprófi.

ENSK2OME05, ENSK2MV05, ENSK3SV05, ENSK3ME05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.  

  • Stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem enska er töluð. 

  • Uppruna ensku og útbreiðslu, og skyldleika þess við íslenskt mál. 

  • Helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls. 

  • Orðafora sem gerir honum kleift að tileinka sér lesefni á áframhaldandi námi eða starfi. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • Lestri, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppsetningu eða myndmál og stílbrögð. 

  • Notkun tungumálsins á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum. 

  • Geta tjáð sig af öryggi um margvísleg málefni. 

  • Að skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram. 

  • Skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.

  • Að taka virkan þátt í samræðum og segja frá á skýran hátt með því að beita viðeigandi orðaforða og málvenjum.  

  • Að nýta sér hjálpargögn, svo sem orðabækur, leiðréttingarforrit, tölvu- og upplýsingatækni eins og kostur er. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókin efni. 

  • Nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á. 

  • Tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt.  

  • Lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta.

  • Greina sögulegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi texta. 

  • Taka þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni. 

  • Eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum. 

  • Geta flutt vel uppbyggða frásögn og rökstutt mál sitt með dæmum og brugðist við fyrirspurnum. 

  • Skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig. 

  • Skrifa texta með röksemdafærslu. 

  • Metið heimildir á gagnrýnan hátt. 

  • Vinna úr ýmsum upplýsingum og fella saman í eina heild. 

  • Vinna með öðrum og stunda samvinnunám. 

  • Beitt gagnrýnni hugsun, fært rök fyrir máli sínu, sýnt frumkvæði og unnið og miðlað þekkingu sinni á skapandi hátt.