Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Galdraveröld Harry Potters
Í þessum áfanga er fjallað um bækur og kvikmyndir J.K. Rowling um Harry Potter. Farið verður yfir bækurnar, unnin verkefni úr þeim og málefni skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Við köfum í atriði á borð við: áhrif á ungt fólk og…
Í þessum áfanga er fjallað um bækur og kvikmyndir J.K. Rowling um Harry Potter. Farið verður yfir bækurnar, unnin verkefni úr þeim og málefni skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Við köfum í atriði á borð við:
Unnin verða ýmiskonar verkefni svo sem ritunarverkefni, munnlegar kynningar og myndbandsverkefni auk þess sem áfanga lýkur með skriflegu prófi. Ætlast er til að nemendur taki virkan þátt í umræðum í kennslustundum og mun það vera ríkur þáttur í lokaeinkunn.
Forþekking á Harry Potter er æskileg.
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.
Tveir áfangar á öðru þrepi.
Nemandi skal hafa tileinkað sér:
Aukinn orðaforða í ensku.
Þekkingu á sérstöðu verka Rowling í bókmenntasögunni.
Samhengi verka hennar í bókmenntasögu og samtímamenningu.
Aðferðir til úrvinnslu og yfirvegun menningarlegra, trúarlegra og siðferðilegra málefna í bókmenntum.
Skilning á hugtökum á borð við ’allegoríu’ og ’fantasía’.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
Ritun á ólíkum tegundum texta.
Beitingu orðaforða um bókmenntir og tungumál.
Að setja fram hugsanir sínar um efni bókmennta á góðri ensku.
Greiningu á myndefni og bókmenntatexta.
Að tjá sig munnlega á ensku um ýmis bókmenntahugtök.
Nemandi skal hafa öðlast hæfni í að:
Leggja gagnrýnið mat á texta, jafnt bókmenntatexta sem fræðilegan texta.
Rita formlega ritgerð með reglum um inngang, efnisyrðingar og meginmál um bókmenntaleg efni, þar sem fræðilegu hugtök eru notuð rétt.
Skrifa skapandi texta byggt á bókmenntum þar sem hugarflugið er notað og stílbrögðum, myndmáli og líkingamáli er beitt.
Flytja vel uppbyggða kynningu um efni þar sem röksemdafærsla er byggð á dæmum og brugðist er við fyrirspurnum á góðri og blæbrigðaríkri ensku.