ENSK3NL05

Nýsköpun, bókmenntir, listir

  • Einingar5

Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti orðaforða sinn tengdan nýsköpun og listum. Nemendur lesa greinar og bókmenntatexta og nálgast efni á netinu. Nemendur eru þjálfaðir í að tjá sig á gagnrýninn hátt…

  • Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti orðaforða sinn tengdan nýsköpun og listum.
  • Nemendur lesa greinar og bókmenntatexta og nálgast efni á netinu.
  • Nemendur eru þjálfaðir í að tjá sig á gagnrýninn hátt á enskri tungu, bæði í ritun og tali og fá tækifæri til að velja sér viðfangsefni eftir áhuga og nálgast þau á skapandi hátt.
  • Áhersla er lögð á samvinnu nemenda, sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi nálgun verkefna í áfanganum ásamt fjölbreyttum kennsluháttum. 

Námsmat er í formi símats.

ENSK3OM, ENSK3MV, ENSK3SV, ENSK3ME.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.

  • Hugtökum er tengjast nýsköpun og listum. 

  • Mannlífi, menningu og siðum fyrr og nú í enskumælandi löndum. 

  • Uppsetningu og skipulagi ritaðs og talaðs máls og ólíkum málsniðum og leiðum til miðlunar.  

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa greinar og texta um efni tengd nýsköpun og listum sér til gagns. 

  • Skilja vel sérhæfða texta á sviði nýsköpunar og lista, þar með talið bókmenntatexta.  

  • Skilja talað mál sem fjallar um nýsköpun og listir, til dæmis fyrirlestra. 

  • Taka virkan þátt í samræðum um nýsköpun og listir. 

  • Tjá sig í ræðu og riti, bæði formlega og óformlega, um efni sem tengist nýsköpun og listum. 

  • Vinna að verkefnum, bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tileinka sér efni sem tengist nýsköpun og listum og nýta á fjölbreyttan hátt.

  • Skilja án vandkvæða megininntak erinda og umræðna um nýsköpun og listir.

  • Geta lagt gagnrýnið mat á texta og metið og unnið úr heimildum á gagnrýninn hátt. 

  • Beita málinu til þess að geta tekið fullan þátt í umræðum þar sem fjallað er um nýsköpun og listir. 

  • Nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar auk gagnrýninnar hugsunar í skapandi verkefnum. 

  • Nýta sér upplýsingatækni til fróðleiks og rannsókna. 

  • Geta sýnt frumkvæði, ábyrgð og umburðarlyndi og beitt gagnrýninni hugsun. 

  • Geta virt skoðanir annarra og leyst verkefni í samvinnu við aðra.

  • Geta tileinkað sér fræðilega, listræna og/eða viðskiptalega hugsun í úrvinnslu bæði hagnýtra og skapandi verkefna.