ENSK3SV05

Samfélag og viðskipti

  • Einingar5

Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri tungu og bæti við orðaforða sinn og málskilning. Bæði almennan orðaforða svo og viðskiptaorðaforða. Nemendur eru þjálfaðir í ritun enskrar tungu með ýmsum verkefnum, m.a. skrifa þeir persónulega ferilskrá og fylgibréf.…

  • Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri tungu og bæti við orðaforða sinn og málskilning. Bæði almennan orðaforða svo og viðskiptaorðaforða.
  • Nemendur eru þjálfaðir í ritun enskrar tungu með ýmsum verkefnum, m.a. skrifa þeir persónulega ferilskrá og fylgibréf.
  • Nemendur æfa viðskiptaorðaforða með þýðingum yfir á ensku.
  • Nemendur eru einnig þjálfaðir í töluðu máli, bæði með styttri umræðum og formlegum fyrirlestri.
  • Ætlast er til þess að nemendur hafi öðlast hæfni B2 samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni.

Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum og öðrum verkefnum, ásamt lokaprófi.

ENSK2OM05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Almennum enskum orðaforða á ýmsum sviðum, bæði almennum tímaritsgreinum og viðskiptatengdum orðaforða.

  • Ólíkum menningarheimum í tíma og rúmi með lestri skáldsagna og smásagna.

  • Hefðum sem eiga við um talað og ritað mál, til dæmis formlega og óformlega málnotkun.

  • Sérhæfðum viðskiptaorðaforða ásamt, uppsetningu formlegra viðskiptabréfa og ferilskráa.

  • Ólíkum viðhorfum og gildum fólks í enskumælandi löndum sem og öðrum menningarheimum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa sér til gagns ýmsar greinar, bæði fræðilegar og almenns eðlis.

  • Skilja talað mál, bæði almenns eðlis og viðskiptalegs eðlis.

  • Taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi, tjá sig munnlega um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið.

  • Skrifa margs konar texta, meðal annars formleg verslunarbréf, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Skilja sér til gagns megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni, ef hann þekkir vel til þess.

  • Tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt.

  • Lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta.

  • Taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt.

  • Eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum.

  • Tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margs konar aðstæður, til dæmis flytja formlegan fyrirlestur.

  • Geta útskýrt sjónarmið varðandi efni sem er ofarlega á baugi og rakið ólík sjónarmið með og á móti.

  • Skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.

  • Skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig.

  • Greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, svo sem í bókmenntaverkum og öðrum textum.