FÉLA2ST05

Stjórnmálafræði

  • Einingar5

Áfanginn er inngangur að stjórnmálafræði sem fræðigrein en einkum verða þrjú meginhugtök notuð sem útgangspunktar. Lýðræði, jafnrétti og mannréttindi. Farið er ítarlega í hugmyndir og kenningar um lýðræði. Lýðræði á Íslandi og íslenska stjórnkerfið er tekið sérstaklega fyrir. Jafnréttishugtakið skoðað…

  • Áfanginn er inngangur stjórnmálafræði sem fræðigrein en einkum verða þrjú meginhugtök notuð sem útgangspunktar. Lýðræði, jafnrétti og mannréttindi.
  • Farið er ítarlega í hugmyndir og kenningar um lýðræði. Lýðræði á Íslandi og íslenska stjórnkerfið er tekið sérstaklega fyrir.
  • Jafnréttishugtakið skoðað frá mörgum sjónarhornum, t.d. út frá hugtökum á borð við kyn, kynhneigð, kynþátt o.fl.
  • Unnið er með mannréttindahugtakið í tengslum við jafnrétti.
  • Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist. Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, jafnt einstaklingssem hópaverkefni.
  • Gert er ráð fyrir nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu. 

Grunnskólapróf

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum greinarinnar. 

  • Þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun. 

  • Hugtökum á borð við lýðræði, jafnrétti, mannréttindi. 

  • Stofnunum íslenska lýðveldisins og virkni þeirra. 

  • Helstu atriðum í tengslum við jafnréttisumræðu nútímans. 

  • Mannréttindum í víðum skilningi. 

  • Réttindum og skyldum þegna í lýðræðissamfélagi. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. 

  • Vinna á skilvirkan hátt og sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf.

  • Verja rökstudda afstöðu sína.

  • Taka þátt í umræðum og greina stjórnmálafræðileg málefni á gagnrýninn hátt.  

  • Nota lykilhugtök tengd efninu. 

  • Greina mismunun milli ólíkra hópa. 

  • Greina stjórnmála- og jafnréttisumræðu í fjölmiðlum og í daglegu lífi.

  • Taka þátt í málefnalegum umræðum.

  • Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.

  • Efla siðferðilega dómgreind sína.

  • Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum.

  • Tileinka sér gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð í faginu.

  • Gera sér grein fyrir samspili viðhorfa, umburðalyndis og fordóma.

  • Finna, meta og greina heimildir og nýta þær í hagnýtum tilgangi.