FJÁM2TP05

Tímagildi peninga

  • Einingar5

Í áfanganum læra nemendur um fjárfestingar og þær aðferðir sem beitt er til þess að meta hagkvæmni þeirra. Þá er farið í helstu tegundir verðbréfa, skuldabréfa og hlutabréfa og virðingu þeirra. Kennsluhættir eru í formi fyrirlestra, umræðutíma, dæmatíma og verkefnavinnu.…

  • Í áfanganum læra nemendur um fjárfestingar og þær aðferðir sem beitt er til þess að meta hagkvæmni þeirra.
  • Þá er farið í helstu tegundir verðbréfa, skuldabréfa og hlutabréfa og virðingu þeirra.
  • Kennsluhættir eru í formi fyrirlestra, umræðutíma, dæmatíma og verkefnavinnu.
  • Lögð er áhersla á að nemendur geti nýtt tölvutæknina við lausn verkefna og geti skilað verkefnum á tölvutæku formi.
  • Markmið er að kennsluhættir stuðli að sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda.
  • Námsefni áfangans má gróflega skipta í þrennt.
    • 1) Umfjöllun um fjárfestingar og útreikningar tengdir þeim. Nemendur læra að meta núvirði fjárfestinga miðað við gefnar forsendur og í framhaldinu ákvarða hvort fjárfesting sé arðbær eða ekki.
    • 2) Umfjöllun um algengustu tegundir skuldabréfa og útreikningum tengdum þeim. Nemendur læra m.a. um mismunandi greiðsluflæði mismunandi skuldabréfa og hvernig samspil ávöxtunarkröfu og greiðsluflæðis hefur áhrif á markaðsvirði skuldabréfa.
    • 3) Umfjöllun um hlutabréf og kennitölur.
  • Nemendur læra að meta virði hlutafjár miðað við gefnar forsendur og mynda sér skoðun á rekstrar- og fjárhagslegri stöðu fyrirtækis.

Í lok áfangans er skriflegt lokapróf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.

HAGF1ÞF05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mismunandi sparnaðarleiðum einstaklinga.

  • Tímagildi fjármagns og grundvallar þýðingu þess í fjármálum.

  • Vísitölum, hlutverki þeirra og notkun.

  • Ávöxtunarkröfu og fjármagnskostnaði sem og áhrifaþætti þessara fjármálhugtaka.

  • Helstu markaðsverðbréfum á íslenskum verðbréfamarkaði og hlutverk kauphalla í verðbréfaviðskiptum.

  • Helstu tegundum skuldabréfa.

  • Mikilvægi fjárfestinga í þjóðfélaginu og hvernig á að meta hagkvæmni þeirra.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Reikna arðsemi mismunandi fjárfestingavalkosta.

  • Reikna markaðsverðmæti/gengi mismunandi tegunda skuldabréfa út frá ávöxtunarkröfu markaðarins.

  • Reikna virði hlutabréfa út frá sjóðsstreymisaðferð.

  • Reikna vísitölur og túlka niðurstöður þeirra.

  • Reikna út helstu kennitölur sem notaðar eru við mat á hlutabréfum og hlutafélögum.

  • Fást við einfalda útreikninga tengda áhrifum fjármögnunar á virði hlutafélaga.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hagnýta sér netið til öflunar og túlkunar fjármálalegra upplýsinga.

  • Fylgjast með verðbréfamarkaðnum og gera sér grein fyrir og meta hvers vegna sveiflur verða á honum og leggja mat á áhrif þeirra.

  • Fylgjast með umræðunni um fjárfestingar og þýðingu þeirra fyrir hagkerfið.

  • Skilja og meta hvað liggur að baki arðsemismati tiltekinnar fjárfestingar.

  • Túlka og greina rekstrarhorfur fyrirtækja út frá ársreikningum.

  • Búa til líkön í Excel til lausnar á fjárfestingavalkostum.

  • Beita gagnrýnni hugsun í einstaklings- og hópavinnu við lausn fjármálatengdra úrlausnarefna.