FRA103

Á fyrstu önn er megináherslan lögð á að kenna nemendum undirstöðuatriði tungumálsins, grunnorðaforða þess og framburð. Miklu máli skiptir að æfa strax í upphafi jafnt tal, hlustun, ritun og lestur. Áhersla er lögð á framburðaræfingar studdar hlustun, þar sem mikilvægt…

Á fyrstu önn er megináherslan lögð á að kenna nemendum undirstöðuatriði tungumálsins, grunnorðaforða þess og framburð. Miklu máli skiptir að æfa strax í upphafi jafnt tal, hlustun, ritun og lestur. Áhersla er lögð á framburðaræfingar studdar hlustun, þar sem mikilvægt er að nemendur temji sér góðan framburð strax í byrjun frönskunáms. Byrjað er á framburðarkennslu og talmálskennslu. Farið er í helstu málfræðiatriði og gerðar eru munnlegar og skriflegar æfingar. Kennara ber að nota sem fjölbreyttastar kennsluaðferðir. Áhersla er lögð á hlustun og að nemendur geti skilið talað mál og svarað sjálfir einföldum spurningum. Unnið er með einfalda texta af mismunandi gerð, svo sem samtöl, stutta texta, ljóð og söngtexta. Gerð eru verkefni úr vinnubók en einnig er farið í ýmis verkefni frá kennara. Nemendur eru æfðir í að tala og skrifa um sjálfa sig, fjölskyldu sína, vini, áhugamál og nánasta umhverfi sitt. Nemendur verði látnir nýta Netið við upplýsingaleit. Nemendur fái grunnþjálfun í notkun orðabóka.

Lesskilning og ritfærni má meta með skriflegu prófi í annarlok, skilning á mæltu máli með hlustunarkönnunum á önninni og/eða hlustunarprófi í lokin og munnlega færni með talæfingum á önninni og/eða munnlegu prófi í annarlok. Mikilvægt er að nemendum sé í upphafi vetrar gerð grein fyrir þeim atriðum sem matið byggir á hverju sinni. Nemendur fá vinnueinkunn, sem byggir á vinnu nemenda yfir önnina. Þar er tekið tillit til námsástundunar og virkni í tímum og frammistöðu þeirra á skyndiprófum og í verkefnum. Vægi hvers þáttar vinnueinkunna er mismunandi eftir árum og kynnir kennari nemendum í upphafi hvers vetrar hvernig árseinkunn er gefin í frönsku.

  • Að nemendur: ·nái nokkru öryggi í frönskum framburði ·geti skilið einföld fyrirmæli á frönsku og geti náð ákveðnum upplýsingum í töluðu máli sem tengist viðfangsefni áfangans ·geti lesið einfalda texta, sem miðast við orðaforðann í áfanganum, og áttað sig á meginefni lengri texta á léttu máli þótt þeir skilji ekki hvert orð ·geti óhræddir skipst á upplýsingum við frönskumælandi fólk um sig og hagi sína með einföldum spurningum og svörum ·geti notað einfaldar setningar til að skrifa kynningar, stuttar lýsingar, stutt bréf og skilaboð ·þjálfist í réttritun ·fræðist um Frakkland, uppruna og útbreiðslu franskrar tungu, kynnist daglegu lífi frönskumælandi þjóða og vakni til vitundar um mismunandi menningarheima