FRA503

Á fjórða ári er áhersla á lestur bókmennta og fræðslu um franska menningu. Áfram er haldið að þjálfa færniþættina fjóra: lestur, hlustun, tal og ritun. Nemendur eru hvattir til aukins sjálfstæðis í vinnubrögðum og til notkunar á orða- og alfræðibókum…

Á fjórða ári er áhersla á lestur bókmennta og fræðslu um franska menningu. Áfram er haldið að þjálfa færniþættina fjóra: lestur, hlustun, tal og ritun. Nemendur eru hvattir til aukins sjálfstæðis í vinnubrögðum og til notkunar á orða- og alfræðibókum sem og Netsins við upplýsingaleit. Nemendur lesa bókmenntaverk, blaða- og tímaritsgreinar, horfa á kvikmyndir og fást við þætti sem tengjast frönskumælandi löndum og menningu þeirra í sem víðustum skilningi. Skrifleg og munnleg umfjöllun um viðfangsefnin. Nemendur vinna þemaverkefni og flytja þau fyrir aðra nemendur í hópum.

Áfanginn er símatsáfangi. Lesskilning og ritfærni má meta með skriflegum prófum jafnt og þétt yfir önnina og skilning á mæltu máli með hlustunarkönnunum á önninni og/eða hlustunarprófi í lokin og munnlega færni með talæfingum á önninni og/eða munnlegu prófi í annarlok. Mikilvægt er að nemendum sé í upphafi annar gerð grein fyrir þeim atriðum sem matið byggir á hverju sinni. Vægi hvers þáttar í einkunn er mismunandi eftir árum og kynnir kennari nemendum í upphafi hvers vetrar hvernig vinnueinkunn er gefin í frönsku.

  • Að nemendur: Hafi vald á skýrum framburði, eðlilegu hljómfalli og blæbrigðum bæði í upplestri og tali. Auki enn við orðaforða sinn og geti notað hann í nýju samhengi. Geti skilið í aðalatriðum almennar samræður og umfjöllun um ýmis efni. Geti tekið þátt í almennum samræðum og tjáð sig skriflega um almenn efni, sem og efni sem tengist bókmenntum og menningu. Geti lesið ýmsar gerðir texta, svo sem bókmenntatexta, nytjatexta og blaða- og tímaritsgreinar. Þjálfist í að afla sér fróðleiks um ýmis efni, t.d. á Netinu og í orða- og alfræðibókum. Fái innsýn í franskar bókmenntir og listir og kynnist betur Frakklandi.

  • Notaðar verða fjölbreyttar kennsluaðferðir, fyrirlestrar, kynningar og verkefnatímar. Nemendur eru sjálfir virkir í tímum og flytja m.a. kynningu og segja frá bók.

  • Lesnar verða 2 – 3 smásögur og skáldsagan Les petits enfants du siècle. Einnig verður upprifjun á málfræði. Nemendur vinna hópverkefni um borg að eigin vali. Það verkefni verður hluti af munnlegu prófi. Tal og hlustun verða æfð jöfnum höndum.