FRUM3FS05

Fyrirtækjasmiðjan - Lokaverkefni

  • Einingar5

Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki og reka. Vinna nemenda felst í því að halda utan um allt sem viðkemur fyrirtækinu en þau hafa nokkuð frjálsar hendur um viðfangsefni fyrirtækisins. Við rekstur fyrirtækjanna…

  • Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki og reka.
  • Vinna nemenda felst í því að halda utan um allt sem viðkemur fyrirtækinu en þau hafa nokkuð frjálsar hendur um viðfangsefni fyrirtækisins.
  • Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum svo sem bókfærslu, fjármálum og hagfræði.
  • Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi.

Áfanginn er að mestu leyti símatsáfangi þar sem unnið er að rekstri fyrirtækisins alla önnina. Hluti námsmats er byggt á smærri verkefnum sem unnin eru snemma á önninni – í undirbúningsferlinu.

Þekking, leikni og hæfni í bókfærslu, hagfræði, stærðfræði og fjármálum.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fyrirtækjarekstri.

  • Gerð viðskiptaáætlana.

  • Gerð einfaldra rekstrarreikninga.

  • Gerð einfaldra efnahagsreikninga.

  • Gerð einfaldra arðsemisútreikninga.

  • Helstu rekstrarformum fyrirtækja.

  • Lögmálum hagfræðinnar.

  • Hringrás efnahagslífsins.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Taka ákvarðanir.

  • Starfa saman í hóp að sameiginlegu langtíma markmiði.

  • Gera auglýsinga- og kynningaráætlanir.

  • Fjármagna eiginn rekstur.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Stofna og reka lítið fyrirtæki.

  • Þróa viðskiptahugmyndir.

  • Stýra verkefnum.

  • Fara með mannaforráð.

  • Vinna saman í hóp og meta vinnu hvers annars.

  • Gera viðskiptaáætlun.

  • Undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni.

  • Fara í gegnum framleiðsluferli vöru eða þjónustu.

  • Markaðsetja og selja afurðir sínar.