FRUM3FS05

Fyrirtækjasmiðjan - Lokaverkefni

  • Einingar5

Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki og reka. Vinna nemenda felst í því að halda utan um allt sem viðkemur fyrirtækinu en þau hafa nokkuð frjálsar hendur um viðfangsefni fyrirtækisins. Við rekstur fyrirtækjanna…

  • Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki og reka.
  • Vinna nemenda felst í því að halda utan um allt sem viðkemur fyrirtækinu en þau hafa nokkuð frjálsar hendur um viðfangsefni fyrirtækisins.
  • Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum til dæmis bókfærslu, fjármálum og markaðsfræði.
  • Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi. 

Áfanginn er að mestu leyti símatsáfangi þar sem unnið er að rekstri fyrirtækisins alla önnina. Hluti námsmats er byggt á smærri verkefnum sem unnin eru snemma á önninni – í undirbúningsferlinu.

Þekking, leikni og hæfni í bókfærslu, hagfræði og fjármálum. 

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fyrirtækjarekstri. 

  • Gerð viðskiptaáætlana. 

  • Gerð einfaldra rekstrarreikninga. 

  • Gerð einfaldra efnahagsreikninga. 

  • Helstu rekstrarformum fyrirtækja. 

  • Hringrás efnahagslífsins. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Taka ákvarðanir. 

  • Starfa saman í hóp að sameiginlegu langtíma markmiði.

  • Gera auglýsinga- og kynningaráætlanir. 

  • Fjármagna eiginn rekstur. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Stofna og reka lítið fyrirtæki. 

  • Þróa viðskiptahugmyndir.

  • Stýra verkefnum. 

  • Fara með mannaforráð. 

  • Vinna saman í hóp og meta vinnu hvers annars. 

  • Gera viðskiptaáætlun. 

  • Undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni.  

  • Fara í gegnum framleiðsluferli vöru eða þjónustu. 

  • Markaðsetja og selja afurðir sínar.