HAGF1ÞF05

Þjóðhagfræði og fjármálalæsi

  • Einingar5

Áfanginn er grunnáfangi í hagfræði og fjármálalæsi. Nemendur fá innsýn í helstu hugtök hagfræðinnar, hlutverk hins opinbera, utanríkisviðskipti, viðskiptasiðfræði og önnur tengd málefni. Kennsla er í formi verkefnavinnu, umræðutíma og fyrirlestra. Nemendur fá þjálfun í gagnrýnni hugsun í tengslum við…

  • Áfanginn er grunnáfangi í hagfræði og fjármálalæsi.
  • Nemendur fá innsýn í helstu hugtök hagfræðinnar, hlutverk hins opinbera, utanríkisviðskipti, viðskiptasiðfræði og önnur tengd málefni.
  • Kennsla er í formi verkefnavinnu, umræðutíma og fyrirlestra.
  • Nemendur fá þjálfun í gagnrýnni hugsun í tengslum við málefni hagkerfisins og eigin fjármála.

Námsmat áfangans er í formi verkefnavinnu og lokaprófs.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hugtökum hagfræðinnar.

  • Hvernig hlutverki hins opinbera er háttað.

  • Mikilvægi utanríkisviðskipta fyrir hagkerfi eins og það íslenska.

  • Gengi gjaldmiðla og áhrif gengis á viðskipti í víðum skilningi.

  • Mikilvægi siðferðis í viðskiptum.

  • Hlutverki kosninga í lýðræðisþjóðfélagi.

  • Hlutverki sveitarfélaga og verkefnum þeirra.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa og skilja fréttir um hagfræðileg málefni.

  • Afla sér upplýsinga um hagfræðileg málefni.

  • Reikna og túlka hagstærðir eins og verðbólgu, vexti, hagvöxt og fleira.

  • Gera sitt eigið skattframtal.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni.

  • Tekið upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál.

  • Gera sér grein fyrir hvernig hagkerfi starfar og helstu verkefnum sem aðilar hagkerfisins takast á við.

  • Vera læs á samfélagið og helstu stoðir hagkerfisins.