HAGF2AH05

Alþjóðahagfræði

  • Einingar5

Hugmyndir og kenningar um milliríkjaviðskipti eru reifaðar og fjallað er um alþjóðlega samvinnu, viðskipti á heimsvísu, sérhæfingu og alþjóðavæðingu í efnahagsmálum. Alþjóðlegar stofnanir og samtök sem eru virk á efnahagssviði eru kynnt og skoðuð áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf. Fjallað…

  • Hugmyndir og kenningar um milliríkjaviðskipti eru reifaðar og fjallað er um alþjóðlega samvinnu, viðskipti á heimsvísu, sérhæfingu og alþjóðavæðingu í efnahagsmálum.
  • Alþjóðlegar stofnanir og samtök sem eru virk á efnahagssviði eru kynnt og skoðuð áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf.
  • Fjallað er um alþjóðleg gjaldeyrisviðskipti, hlutverk seðlabanka og áhrif þeirra á hagkerfi.
  • Námsefni og umfjöllunarefni er bæði á íslensku og ensku.
  • Fer kennslan fram m.a. með fyrirlestrum, samræðum innan bekkjarins og verkefnavinnu.
  • Skoðuð eru myndbönd með efni sem varða viðfangsefni áfangans og innihald þeirra rætt.
  • Fylgst er með fréttum, sérstaklega þeim sem varða viðfangsefni áfangans.
  • Nemendur vinna einnig verkefni sem þeir kynna fyrir samnemendum. 

Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.

HAGF1ÞF05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu kenningum og hugtökum alþjóðahagfræðinnar. 

  • Hlutverki seðlabanka og hvaða tækjum hann getur beitt til þess að hafa áhrif á efnahagslífið. 

  •  Hagkvæmni milliríkjaviðskipta. 

  •  Áhrifum af setningu hafta á viðskipti milli landa. 

  •  Helstu stofnunum alþjóðasamfélagsins og hlutverkum þeirra. 

  •  Því hvernig atburðir í einu hagkerfi hafa áhrif í öðru hagkerfi. 

  •  Samskiptum íslenska hagkerfisins við önnur hagkerfi. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Geta upp á eigin spýtur nálgast upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og efnahagslíf annarra þjóða. 

  • Skilja hvaða afleiðingar inngrip seðlabanka geta haft. 

  • Vinna með gögn og setja þau upp á mismunandi hátt svo þau verði læsilegri. 

  • Túlka og skilja gögn sem sett eru fram. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Túlka og skilja gögn sem sett eru fram.

     

  • Tjá sig um hagfræðileg málefni, bæði munnlega og skriflega. 

  • Lesa og skilja umfjöllun um hagfræðileg málefni. 

  • Taka ábyrgð á eigin námi. 

  • Lesa texta um hagfræðileg málefni á erlendu tungumáli.