HELI2HS05

Heimspeki og sköpun

  • Einingar5

Í þessum áfanga eru nemendur kynntir fyrir heimspekilegri hugsun með sérstakri áherslu á skapandi hugsun og heimspeki lista. Vinna áfangans fer fyrst og fremst fram í samræðum en jafnframt fá nemendur tækifæri til að tjá hugsun sína með fjölbreytilegum hætti.…

  • Í þessum áfanga eru nemendur kynntir fyrir heimspekilegri hugsun með sérstakri áherslu á skapandi hugsun og heimspeki lista.
  • Vinna áfangans fer fyrst og fremst fram í samræðum en jafnframt fá nemendur tækifæri til að tjá hugsun sína með fjölbreytilegum hætti.
  • Nemendur eru kynntir fyrir heimspekilegri hugsun með sérstakri áherslu á skapandi og gagnrýna hugsun og heimspeki lista.
  • Unnið verður með efni úr vestrænni heimspekihefð en jafnframt litið til austurs.
  • Vinna áfangans fer fyrst og fremst fram í samræðum, auk þess að nemendur fá tækifæri til að fást við efni áfangans með aðferðum mynd- og leiklistar.

Mat á áfanganum byggir á þátttöku í tímum og fjölbreyttri verkefnavinnu þar sem nemendur fá tækifæri til að tjá hugsun sína í ýmsum miðlum.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Rökum og rökstuðningi.

  • Rökvillum.

  • Afstæði og algildi.

  • Tvíhyggju og efnishyggju.

  • Kenningum um sjálfið.

  • Austrænni heimspeki og núvitund.

  • Kenningum um eðli lista og fegurðar.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina góð rök í máli fólks.

  • Ljá hugsun sinni búning.

  • Vera gagnrýninn í hugsun og tjáningu.

  • Vera skapandi í hugsun og tjáningu.

  • Hlusta.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hlusta á málflutning og lesa texta og greina hann með gagnrýnum hætti, m.a. með því að finna rökvillur (t.d. auglýsingar).

  • Setja hugsun sína fram með skýrum hætti munnlega og skriflega.

  • Finna skapandi lausnir á vandamálum og setja þær fram með fjölbreytilegum hætti.

  • Taka þátt og jafnvel leiða samræður um krefjandi spurningar þar sem ekki er um einfalda lausn að ræða.

  • Beita heimspekilegum hugmyndum í leik og starfi og stuðla að andlegu og félagslegu jafnvægi hjá sjálfum sér og í hóp.