HÖNN2SM05

Stafræn hönnun og miðlun

  • Einingar5

Í áfanganum verður unnið með fjölbreyttan hugbúnað og veflausnir sem tengjast ýmissi hönnun m.a. myndvinnslu í Photoshop, Illustrator og Inndesign, stafrænni miðlun efnis á fjölbreyttan hátt. Áfanginn er verkefnaáfangi þar sem lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, þjálfun í miðlun…

  • Í áfanganum verður unnið með fjölbreyttan hugbúnað og veflausnir sem tengjast ýmissi hönnun m.a. myndvinnslu í Photoshop, Illustrator og Inndesign, stafrænni miðlun efnis á fjölbreyttan hátt.
  • Áfanginn er verkefnaáfangi þar sem lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, þjálfun í miðlun og framsetningu eigin efnis og verða efnistök af ýmsum toga.

Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum yfir önnina.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Stafrænni miðlun.

  • Forritunum Photoshop, Illustrator og Inndesign.

  • Myndvinnslu.

  • Möguleikum hönnunar með stafrænum miðlun.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Vinna með myndir og skila þeim frá sér á stafrænu formi.

  • Nýta sér forrit á netinu til að skila frá sér hugmyndum á stafrænu formi.

  • Fylgja hugmynd til framkvæmdar.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Breyta, sameina og útbúa myndir á stafrænu formi og til prentunar.

  • Útfæra eigin hugmyndir í myndvinnsluforritum.

  • Nýta sér umhverfi stafrænnar hönnunar.

  • Vinna sjálfstætt og með leiðsögn á skapandi hátt.