HÖNN3NF05

Nýsköpun og fyrirtækjarekstur

  • Einingar5

Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki. Vinna nemenda felst í því að hanna vöru eða þjónustu sem fyrirtækið framleiðir, markaðssetur og selur. Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem…

  • Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki.
  • Vinna nemenda felst í því að hanna vöru eða þjónustu sem fyrirtækið framleiðir, markaðssetur og selur.
  • Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum svo sem viðskiptagreinum og list- og hönnunargreinum.
  • Unnið er með hugtakið frumkvöðull og hvað í því felst. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi. 

Áfanginn er símatsáfangi þar sem unnið er að hönnun vörunnar og rekstri fyrirtækisins alla önnina.

Grunnþekking í viðskiptagreinum, stafrænni hönnun og listgreinum. 

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hugtökum í fyrirtækjarekstri. 

  • Gerð viðskiptaáætlana. 

  • Gerð einfaldra rekstrarreikninga. 

  • Gerð einfaldra efnahagsreikninga. 

  • Hugtökunum frumkvöðull og nýsköpun. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Taka ákvarðanir. 

  • Greina þarfir fyrir vöru og þjónustu. 

  • Gera auglýsinga- og kynningaráætlanir. 

  • Fjármagna eigin rekstur. 

  • Fylgja hugmynd til framkvæmdar í samvinnu við aðra. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Stofna og reka lítið fyrirtæki. 

  • Stýra verkefnum. 

  • Vinna saman í hóp og meta vinnu hvers annars. 

  • Gera viðskiptaáætlun. 

  • Undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni. 

  • Fara í gegnum framleiðsluferli vöru eða þjónustu. 

  • Markaðsetja og selja afurðir sínar.

  • Greina tækifæri í umhverfinu.