ÍSLE2RM06

Íslenska, ritun, málnotkun og tjáning

  • Einingar6

Í áfanganum er mikil áhersla lögð á lestur og tjáningu í ræðu og riti. Nemendur lesa eina skáldsögu á önninni. Kenndur er frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna svo sem handbóka og orðabóka. Mikil áhersla er lögð á tölvunotkun í…

  • Í áfanganum er mikil áhersla lögð á lestur og tjáningu í ræðu og riti. Nemendur lesa eina skáldsögu á önninni. Kenndur er frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna svo sem handbóka og orðabóka. Mikil áhersla er lögð á tölvunotkun í vinnslu og skilum verkefna.
  • Nemendur eru þjálfaðir í setningafræði þar sem þeir greina og glöggva sig á skiptingu texta í setningar og setningarliði.
  • Gerð er grein fyrir reglum um greinarmerki og nemendur þjálfaðir í notkun þeirra.
  • Fjallað verður um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Farið verður yfir sögu íslensks máls og skyldleika við önnur tungumál og helstu hljóð- og málbreytingar íslenskunnar í fyrirlestrum, umræðum og með töflukennslu auk verkefnavinnu og ritunarverkefna.
  • Unnin verða ýmis hagnýt verkefni í tengslum við málnotkun; beygingar, orðaforða, orðtök o.fl.
  • Stafsetningarupplestrar eru reglulega og nemendur þjálfaðir í stafsetningu.
  • Markviss þjálfun í tjáningu er ein kennslustund á viku. Áhersla er lögð á framsögn við ýmiss konar tækifæri. Þá er einnig áhersla lögð á að styrkja sjálfstraust nemenda.

Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum, ritunarverkefnum, tjáningarverkefnum, stafsetningu og öðrum verkefnum sem og lokaprófi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu þáttum íslenskrar málsögu.

  • Helstu hugtökum setningafræði og reglum um greinarmerki.

  • Helstu grunnhugtökum í ritgerðasmíð.

  • Málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli.

  • Orðaforða sem nægir til að skilja íslenskt nútímamál í ræðu og riti.

  • Upplýsingatækni sem nýtist honum í ritun og notkun ýmissa hjálpargagna.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota upplýsingatækni markvisst við frágang ritsmíða.

  • Nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni.

  • Skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli.

  • Flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tileknum málefnum.

  • Nota bókmenntahugtök á ýmsa texta.

  • Réttritun eftir upplestri.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna tilbrigði í málnotkun.

  • Styrkja eigin málfærni og nám í erlendum tungumálum, til dæmis með því að nýta málfræðihugtök íslenskunnar.

  • Beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti og geta nýtt það við hin ýmsu hjálpargögn á netinu og tölvuforrit.

  • Taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.

  • Túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu.