ÍSLE3NB05

Bókmenntir á 20. og 21. öld

  • Einingar5

Í áfanganum vinna nemendur með skáldsögur, fræðitexta, ljóð og textabrot eftir helstu skáld 20. og 21. aldar. Lögð er áhersla á fjölbreytta verkefnavinnu þar sem nemendur vinna jafnt hefðbundin ritunarverkefni sem og skapandi verkefni. Nemendur efla hæfni sína við að…

  • Í áfanganum vinna nemendur með skáldsögur, fræðitexta, ljóð og textabrot eftir helstu skáld 20. og 21. aldar.
  • Lögð er áhersla á fjölbreytta verkefnavinnu þar sem nemendur vinna jafnt hefðbundin ritunarverkefni sem og skapandi verkefni.
  • Nemendur efla hæfni sína við að byggja upp heimildaritgerð á sjálfstæðan og faglegan hátt.
  • Einnig eru ýmis verkefni þar sem nemendur efla hæfni sína í að vinna skapandi verkefni.
  • Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og þátttöku nemenda í umræðum.

Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá. Það samanstendur af vinnu annarinnar og skriflegu lokaprófi.

10 fein. í íslensku á 2. þrepi.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Ritgerðarsmíð og heimildarvinnu.

  • Helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti, sem og til náms í erlendum tungum.

  • Orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu.

  • Mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta, stefnum í íslenskum bókmenntum og helstu bókmenntahugtökum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinagóðan hátt á blæbrigðaríku máli.

  • Ganga frá hvers kyns texta og nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta.

  • Flytja af öryggi og sannfæringarkrafti vel upp byggða ræðu eða ítarlega kynningu á flóknu efni.

  • Lesa allar gerðir ritaðs máls sér til gagns og gamans, skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið.

  • Skilja og nota viðeigandi málsnið, stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum.

  • Beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti.

  • Tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu.

  • Átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum úr ræðu og riti.