ÍSLE3ÞT05

Þjóð, tunga og land

  • Einingar5

Nemendur lesa eina Íslendingasögu og vinna verkefni sem miða að því að auka skilning þeirra á íslensku máli og samfélagi að fornu og nýju. Leitast verður við að setja miðaldabókmenntir í samhengi við samtíma nemenda og meta merkingu þeirra fyrir…

  • Nemendur lesa eina Íslendingasögu og vinna verkefni sem miða að því að auka skilning þeirra á íslensku máli og samfélagi að fornu og nýju.
  • Leitast verður við að setja miðaldabókmenntir í samhengi við samtíma nemenda og meta merkingu þeirra fyrir nútímann.
  • Nemendur öðlast færni í að lesa og skilja miðaldatexta, kynnast uppruna og frásagnarlist Íslendingasagna og átta sig á mikilvægi þess menningararfs sem þær hafa að geyma.
  • Lesnar eru greinar um íslenska menningu og tungu á ýmsum tímum og vinna nemendur tjáningar- og ritunarverkefni upp úr þeim.
  • Nemendur vinna heimildaritgerð um núlifandi, íslenskan listamann.

Námsmat byggir á vinnu nemandans yfir önnina og er tilgreint nánar í námsáætlun.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu.

  • Ritgerðarsmíð og heimildavinnu.

  • Notkun forns menningararfs í nútímasamfélagi.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Vinna að heimildaritgerðum og hvers kyns texta þar sem beitt er gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og koma efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli.

  • Skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli.

  • Flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni.

  • Lesa sér til gagns og gamans texta á fornu íslensku máli.

  • Nota upplýsingatækni við nám sitt.

  • Að rita íslenskt mál samkvæmt reglum.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrifa skýran og vel uppbyggðan texta.

  • Beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður.

  • Taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.

  • Túlka texta fornbókmennta og þekkja mun á fornu og nútímamáli.

  • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun.

  • Sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og upplýsinganotkun.