LIGR2LL05

Leiklist

  • Einingar5

Í áfanganum er farið í helstu hugtök innan leikhúsfræðanna. Nemendur kynnast grunnverkfærum (body and mind) leikarans við túlkun og áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins við persónusköpun. Nemendur gera æfingar er tengjast vinnu leikarans með ímyndundaraflið til að leysa hin…

  • Í áfanganum er farið í helstu hugtök innan leikhúsfræðanna.
  • Nemendur kynnast grunnverkfærum (body and mind) leikarans við túlkun og áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins við persónusköpun.
  • Nemendur gera æfingar er tengjast vinnu leikarans með ímyndundaraflið til að leysa hin ýmsu verkefni.
  • Þeir rannsaka hvað þarf til að gera orð á blaði leikbær ásamt því hvernig unnið er með textagreiningu (prosework).
  • Nemendur fá tækifæri til að takast sjálfir á við verkefnin með beinni þátttöku sem og að fylgjast með samnemendum kljást við verkefnin.
  • Nemendur undirbúa verklegar æfingar, sjálfstætt eða með öðrum, sem flutt eru í tímum.
  • Töfrar leikhússins. Farið verður í heimsókn í leikhúsin og fá nemendur að kynnast ólíkum störfum innan þess. Einnig verður haldin samlestur í tíma, á verki sem sýnt er í leikhúsinu það leikárið, þar sem nemendur fá að spreyta sig og að samlestri loknum verður farin hópferð í leikhús á þá sýningu.
  • Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og þátttöku í kennslustundum.

Byggir á ástundun, virkni og framförum nemenda í tímum sem og verkefnum sem unnin eru yfir önnina.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hugtökum leikhúsfræðanna.

  • Ólíkum nálgunum á listformið.

  • Ákveðnum þáttum við textagreiningu.

  • Möguleikum leiklistar.

  • Mikilvægi hlustunar við sköpun.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Takast á við fyrstu skref leikarans við persónusköpun.

  • Skapa leikbærar kringumstæður.

  • Nota hugtök leikhúsfræðanna við réttar aðstæður.

  • Koma nokkurn veginn óheftur fram fyrir öðrum.

  • Tjá sig um leikhús og leikverk.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Fjalla um leiklist.

  • Setja fram röksemdir fyrir skoðunum sínum í tengslum við leikhús og nota til þess viðeigandi hugtök.

  • Beita gagnrýnni hugsun á listformið.

  • Gera sér grein fyrir tilgangi og mikilvægi leiklistar.

  • Nýta leiklist í eigin framkomu.

  • Efla eigin sjálfsmynd og trú á eigin getu.

  • Virkja ímyndunarafl og efla skapandi hugsun.