LIGR2SL05

Sjónlistir

  • Einingar5

Áfanginn einkennist af því að kynna fyrir nemendum mismunandi svið sjónlista. Þeir læra grunntækni í myndlist með tengingu við samtímalist og málefni líðandi stunda. Í áfanganum er unnið með mismunand aðferðir sjónlista eftir fjölbreyttum þemum. Mikil áhersla er lögð á…

  • Áfanginn einkennist af því að kynna fyrir nemendum mismunandi svið sjónlista.
  • Þeir læra grunntækni í myndlist með tengingu við samtímalist og málefni líðandi stunda.
  • Í áfanganum er unnið með mismunand aðferðir sjónlista eftir fjölbreyttum þemum.
  • Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og þátttöku í kennslustundum.
  • Kennsluhættir áfangans eru með þeim hætti að áhersla er lögð á grunnhugmyndir fagmiðaðrar myndlistakennslu þar sem nemendur rannsaka, skapa, sýna, tjá og túlka.
  • Í öllum verkefnum er lögð áhersla á að nemendur geti tekið þátt í umræðum og greint niðurstöður sínar.
  • Áfanginn inniheldur lita- og formfræði, vinnu með pósitívur og negatívur.
  • Unnið er með litahring Ittens í litablöndun og hvernig má framkalla þrívídd með skyggingu og blöndun lita og tóna.
  • Unnið er með aðferðir í farvíddar í myndfleti og nemendur læra forsendur eins-, tveggja- og þriggjapuntka fjárvíddar.
  • Nemendur mála mynd á striga og nýta sér aðferðir úr lita- og formfræði og að vinna með akrylmálningu.
  • Nemendur vinna portrait teikningar og teikna sjálfsmyndir með ýmsum aðferðum. Nemendur læra að vinna í skissubók.
  • Lokaverkefni nemenda er að þeir velja sér gildi, aðferð og miðil til að vinna með í lokaverkefni sem verður til sýningar í lok annarinnar.
  • Farið verður í heimsókn á sýningar og verkefni unnin á staðnum eða út frá sýningunum.

Metin verður virkni í kennslustundum og heimaverkefnum og fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina. Engin skrifleg lokapróf eru í áfanganum. Metið er fyrir tækni, virkni, skapandi og greinandi þátttöku. Ábyrgð og sjálfstæði í verkefnum verður metið

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnatriðum í teikningu, litafræði og formfræði.

  • Grunnatriðum í fjarvíddarteikningu.

  • Grunnatriði í einföldum portrait teikningum og sjálfsmyndum með ýmsum aðferðum.

  • Grunnatriðum í meðferð og málun með akrylmálningu á striga.

  • Mismunandi verkfærum og mismunandi tækni, mismunandi sviðum sjónlista.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Vinna með grunnatriði í myndlist, s.s. teikna einföld form og skyggja, búa til fjarvídd, myndfleti o.fl.

  • Nýta skissubók fyrir skráningu hugmynda.

  • Nýta sér mismunandi svið sjónlista til listsköpunar.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Þróa eigin hugmyndir út frá kveikjum og tækni.

  • Koma auga á hugmyndir í umhverfi.

  • Ræða og rökstyðja hugmyndir sínar og skoðanir.

  • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun.

  • Nýta aðferðir sjónlista til að tjá skoðanir sínar.

  • Fylgja hugmynd til framkvæmdar og auka sköpunarkjark.