LIST2LI05

Byggingarlist, höggmyndir, listasaga, myndmennt

  • Einingar5

Námefni áfangans eru helstu stefnur og straumar og listamenn í vesturheimi á sviði mynd-, höggmynda- og byggingarlistar frá upphafi til okkar daga. Kennsla byggist á fyrirlestrum kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks…

  • Námefni áfangans eru helstu stefnur og straumar og listamenn í vesturheimi á sviði mynd-, höggmynda- og byggingarlistar frá upphafi til okkar daga.
  • Kennsla byggist á fyrirlestrum kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð.
  • Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist.
  • Nemendur kynna sér sjálfir ýmsar tiltækar heimildir og vinna verkefni.
  • Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og þátttöku í kennslustundum.
  • Verkefni felast í rituðu máli þar sem taka skal sjálfstæða afstöðu til efnisins.
  • Framsetning efnis er í samræmi við námsefnið, mjög myndræn.

Í áfanganum er lokapróf en vinnueinkunn er gefin út frá annarprófum, smærri æfingum, fyrirlestraverkefnum nemenda og virkni nemenda og þátttöku.

Æskilegt að hafa tekið einn til tvo áfanga í sögu.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu stíleinkennum í mynd-, höggmynda- og byggingarlist í vesturheimi.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Meta fjölbreytilega ásýnd lista.

  • Skiptast á skoðunum um sjónlistir.

  • Vinna úr heimildum á skipulegan hátt.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Fjalla um eðli lista.

  • Setja fram röksemdir fyrir skoðunum sínum.

  • Bera saman, finna tengsl, einfalda og draga ályktanir af listasögunni.

  • Nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt.

  • Vera læs á listmenningu og sögulega þróun hennar.

  • Stunda háskólanám í listgreinum.

  • Beita upplýsingatækni í þekkingarleit sinni.