LÖGF3LR05

Réttarreglur, lögskipan

  • Einingar5

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í réttarreglurnar (alþjóðlegar og íslenskar) og geri sér grein fyrir hvernig þær verka á samskipti manna og öðlist almenna fræðslu um íslenska lögskipan. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og…

  • Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í réttarreglurnar (alþjóðlegar og íslenskar) og geri sér grein fyrir hvernig þær verka á samskipti manna og öðlist almenna fræðslu um íslenska lögskipan.
  • Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum.
  • Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og geti beitt tilteknum hugtökum varðandi lausnir á lögfræðilegum álitaefnum og geti rökstutt mál sitt í tengslum við þau.
  • Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf.
  • Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð er áhersla á að nemendur verði færir í rökhugsun.

Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og skriflegu prófi í lokin.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Lögfræði sem fræðigrein.

  • Nokkrum grundvallarhugtökum lögfræðinna.

  • Stjórnskipun Íslands.

  • Mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar.

  • Stjórnsýslulögunum.

  • Mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar.

  • Stjórnsýslulögunum.

  • Réttarheimildum íslensks réttar.

  • Dómstólum landsins.

  • Réttindum og skyldum á vinnumarkaðnum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja notkun ákveðinna lykilhugtaka lögfræðinnar.

  • Móta og setja fram texta, lögfræðilegs eðlis, á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans.

  • Leysa verkefni þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og skiljanlegan hátt.

  • Sjá álitaefnin út frá ólíkum sjónarhornum.

  • Vinna sjálfstætt.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja fram skoðanir sínar, taka þátt í rökræðum og túlka ólík sjónarmið á fordómalausan en gagnrýninn og ábyrgan hátt.

  • Efla með sér hæfni til sjálfstæðis í hugsun og vinnubrögðum sem og samstarfs.

  • Geta tekið afstöðu til siðferðilegra álitamála.

  • Vera virkur borgari í lýðræðisþjóðfélagi.

  • Bera virðingu fyrir mannréttindum.

  • Taka þátt í að móta samfélag sitt.

  • Geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.

  • Nýta sér lögfræðilega þekkingu til lausnar í sérhæfðum, raunhæfum verkefnum.

  • Beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna.

  • Fylgja röksemdafærslu í mæltu máli og texta.

  • Vinna sjálfstætt að verkefnum og vera ábyrgur í heimildarlei.

  • Undirbúa frekara nám og störf.