LOKA3ES05

Lokaverkefni

  • Einingar5

Þessi áfangi er lokaáfangi á Alþjóðabraut og er ætlað að draga saman þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur hafa öðlast í erlendum tungumálum og félagsvísindagreinum s.s. alþjóðafræði og menningarfræði. Nemendur brautarinnar taka þátt í samvinnuverkefnum með skólum víðs vegar…

  • Þessi áfangi er lokaáfangi á Alþjóðabraut og er ætlað að draga saman þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur hafa öðlast í erlendum tungumálum og félagsvísindagreinum s.s. alþjóðafræði og menningarfræði.
  • Nemendur brautarinnar taka þátt í samvinnuverkefnum með skólum víðs vegar í Evrópu sem fer fram í gegnum alþjóðlegar menntaáætlanir, svo sem Erasmus+, Nordplus junior og etwinning.
  • Áfanginn er kenndur á síðasta ári en nemendaskiptin sjálf geta farið fram, hvenær sem er, áður eða á meðan á áfanganum stendur.
  • Verkefni þessi geta verið á milli tveggja til níu skóla og veita nemendum tækifæri til að meta eigin færni í tungumálum og samskiptum við jafningja sína í gegnum sameiginlega verkefnavinnu og evrópsku tungumálamöppuna.
  • Hin þverfaglega verkefnavinna sem innt er af hendi af nemendum nær yfir öll færnisvið: lestur, ritun, ræðu og hlustun bæði í gegnum vinnu á námsefni og með margmiðlunartækni.
  • Einnig er áhersla á að efla menningarlæsi og fjölmenningarmeðvitund nemenda í áfanganum auk þessa að efla meðvitund þeirra um eigin menningu.
  • Nemendur þjálfast í samskiptatækni bæði við nemendur í eigin skóla og erlendum skólum auk þess sem verkefni sem tekin eru fyrir í áfanganum efla félags- og borgaravitund nemendanna.
  • Enn fremur munu nemendur í þessum áfanga fá þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og vinna stórt rannsóknarverkefni í tengslum við ákveðna ferð eða alþjóðlegt verkefni.
  • Inntak og efni þess getur verið breytilegt á milli ára.
  • Í heimsóknum sínum til annarra landa er nemendum gert að halda utanum allt það kynningarefni sem þeir fá og setja í þar til gerða safnmöppu (portfolio). Þær upplýsingar nota þeir síðar við gerð rannsóknarverkefnis síns.
  • Loks munu nemendur kynna fyrir samnemendum og kennurum þau lönd og menningu þeirra sem þau hafa heimsótt í náminu.

Byggir á ástundun og virkni í tímum og á meðan á samskiptunum stendur auk safnmöppu. Einnig eru nokkur verkefni sem metin eru til einkunna og lokaverkefnið vegur þar þyngst.

Hæfni á 2. – 3. þrepi í félagsvísindagreinum og erlendum tungumálum.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mismunandi menningarheimum, málnotkun og áherslum í samskiptum við fólk frá öðrum löndum og menningarsvæðum.

  • Að beita erlendu tungumáli í samskiptum sínum við nemendur/einstaklinga frá öðrum löndum.

  • Styrk-og veikleikum sínum í samskiptum á erlendu tungumáli gegnum vinnu í samvinnuverkefnum.

  • Hlutverki samvinnu á jafninga grundvelli í samvinnuverkefnum.

  • Mikilvægi menningar-og borgaravitundar í samskiptum í alþjóðlegu umhverfi.

  • Mikilvægi samskiptatækni í miðlun upplýsinga milli landa.

  • Ólíkum venjum og siðum þegar kemur að samskiptum á milli menningarsvæða.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Vinna með jafningjum af öðru þjóðerni að sameiginlegu verkefni á erlendu samskiptamáli.

  • Nota fjölbreyttan orðaforða í erlendu tungumáli í samvinnuverkefnum.

  • Gera grein fyrir niðurstöðum verkefna í ræðu og riti á því tungumáli sem notað er sem samskiptamál í verkefninu.

  • Fræðast um annað land, samfélag og aðstæður, bæði sem einstaklingur og í hópi.

  • Vera góður fulltrúi eigin lands og skóla, bæði heima og erlendis.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Virða menningarmun / ólíka menningarheima og samfélög.

  • Laga sig að ólíkum aðstæðum í alþjóðlegum samskiptum.

  • Beita sjálfstæðum vinnubrögðum í einstaklings- og hópverkefnum með erlendum jafningjum sem krefjast góðrar tungumálakunnáttu í samskiptamálinu.

  • Njóta upplifunar í erlendu landi bæði sem einstaklingur á heimilum gestgjafa og sem hluti af hóp.

  • Nýta upplýsingatækni og margmiðlun til að efla samskipti og samvinnu við nemendur í öðrum löndum.

  • Takast á við frekara nám hérlendis sem og erlendis.

  • Sjá menntun sína í alþjóðlegu samhengi.

  • Vinna sjálfstæða heimildaritgerð, þ.e. leita heimilda, setja upp heimildaskrá, nota tilvitnanir og gera grein fyrir þeim og vinna úr upplýsingum.