Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Í kennslunni er farið yfir grundvallarhugtök sem tengjast markaðsfræði og fjallað um hvernig hugmyndafræðin er notuð til að markaðssetja vörur og þjónustu. Sérstaklega er farið í mikilvægi markaðsstarfs í síbreytilegu umhverfi, afstöðu fyrirtækja til markaðarins, rekstrar og samkeppnisumhverfi, markaðshlutun,…
Í kennslunni er farið yfir grundvallarhugtök sem tengjast markaðsfræði og fjallað um hvernig hugmyndafræðin er notuð til að markaðssetja vörur og þjónustu. Sérstaklega er farið í mikilvægi markaðsstarfs í síbreytilegu umhverfi, afstöðu fyrirtækja til markaðarins, rekstrar og samkeppnisumhverfi, markaðshlutun, val markhópa, staðfærslu, vöruþróun, líftíma vöru, vöruhugtakið, verðlagningu, kynningarmál, ímynd fyrirtækja og markaðsáætlanir. Farið er yfir grundvallaratriði markaðsrannsókna og gerð skoðanakannana kynnt.
Lokapróf 50% Verkefni 30% Skyndipróf 10% Ástundun 10%.
Að nemendur læri undirstöðuatriði við stjórnun og skipulagningu markaðsaðgerða.
– Fyrirlestrar – verkefnavinna – nemendur vinna einstaklings – eða hópverkefni tengt hverjum kafla og flytja frammi fyrir bekknum. Á félagsfræðibraut er unnið stórt verkefni þar sem að nemendur gera markaðsáætlun.