MARK3GG05

Gagnaöflun og greining

  • Einingar5

Meginviðfagnsefni áfangans er að kynna fyrir nemendum markaðsrannsóknir og ýmis greiningartól fyrir vefsíður og vefverslanir. Farið verður ítarlega í gerð markaðsrannsókna, gagnasöfnun, gagnagreiningu og úrvinnslu. Einnig læra nemendur á vefgreiningartól eins og Google Analytics og Facebook analytics. Kennsla fer fram…

  • Meginviðfagnsefni áfangans er að kynna fyrir nemendum markaðsrannsóknir og ýmis greiningartól fyrir vefsíður og vefverslanir.
  • Farið verður ítarlega í gerð markaðsrannsókna, gagnasöfnun, gagnagreiningu og úrvinnslu.
  • Einnig læra nemendur á vefgreiningartól eins og Google Analytics og Facebook analytics.
  • Kennsla fer fram með stuttum fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu nemenda.
  • Áhersla er lögð á raunhæf verkefni, sjálfsnáms og hópavinnu og að nemendur sýni sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.

Áfanginn er símatsáfangi og byggist upp á raunhæfum verkefnum, bæði einstaklings- og hópverkefnum. Lokaverkefni áfangans felst í gerð markaðsrannsóknar og skal niðurstöðum skilað í formi ítarlegrar skýrslu sem kynnt er fyrir kennara, samnemendum og samstarfsfyrirtækjum.

MARK2HN05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Markaðsrannsóknarferlinu og helstu hugtökum tengdum markaðsrannsóknum.

  • Muninum á eigindlegum og megindlegum rannsóknum.

  • Helstu markaðsrannsóknaraðferðum og kostum þeirra og takmörkunum.

  • Hinum ýmsu greiningartólum fyrir vefsíður og vefverslanir.

  • Hlutverki markaðsrannsókna og vefgreininga í ákvarðanatöku stjórnenda.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita helstu hugtökum varðandi markaðsrannsóknir og vefgreiningar við verkefnavinnu.

  • Nýta tækni og hugbúnað við markaðsrannóknir og vefgreiningar.

  • Greina hvenær þörf er á upplýsingum, finna þær, meta áreiðanleika þeirra og nýta á viðeigandi hátt.

  • Leysa raunhæf verkefni tengd markaðsrannsóknum og vefgreiningu.

  • Vinna í hóp og þjálfa með sér gagnrýna hugsun.

  • Koma þekkingu sinni til skila skýrt og skipulega.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta unnið sjálfstætt og skipulega.

  • Meta hvaða rannsóknaraðferð á við þegar þörf er á markaðsrannsókn.

  • Skipuleggja og framkvæma einfaldar rannsóknir.

  • Vinna úr upplýsingum úr rannsóknum og túlka og meta niðurstöður.

  • Greina umferð um vefsíður og vefverslanir og hegðun viðskiptavina og meta hvar sé tilefni til úrbóta.

  • Kynna niðurstöður og tillögur til úrbóta.