NÁTT1EJ05

Eðlisfræði og jarðfræði

  • Einingar5

Grunnáfangi í jarðfræði þar sem fram fer kynning á viðfangsefnum jarðfræðinnar. Farið er yfir grunnhugtök í tenglsum við jarðfræðileg ferli og áhrif mannsins á þau. Einnig er farið í grunnatriði í eðlisfræði.

  • Grunnáfangi í jarðfræði þar sem fram fer kynning á viðfangsefnum jarðfræðinnar.
  • Farið er yfir grunnhugtök í tenglsum við jarðfræðileg ferli og áhrif mannsins á þau.
  • Einnig er farið í grunnatriði í eðlisfræði.

Námsmatið samanstendur af lokaprófi, kaflaprófum, fjölbreyttum verkefnum, fyrirlestrum, ritgerðum, veggspjöldum, myndböndum, vettvangsferðum og verklegum æfingum.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnlögmálum jarðfræðinnar og þeim ferlum sem stýra gangi náttúrunnar.

  • Umhverfi sínu og þeim landmótunarferlum sem stjórnast af innrænum og útrænum öflum.

  • Hugtökunum sjálfbærni og sjálfbærri þróun í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda.

  • Lofthjúpnum og loftslagsbreytingum.

  • Eðli vatns og hringrás vatns á jörðinni.

  • Hreyfingu hluta, stöðuorku og áhrifum þyngdaraflsins.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Setja fram og túlka einfaldar myndir, kort og gröf.

  • Nota gögn og heimildir í raunvísindum.

  • Tengja við ferli í náttúrunni, hringrásir og lögmál.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Gera sér grein fyrir samhengi í náttúrunni út frá þeim ferlum sem stýra gangi náttúrunnar.

  • Skilja mikilvægi þessa að sýna umhverfi sínu og náttúru virðingu.

  • Gera sér grein fyrir ógnum í náttúrunni og viðbrögðum við þeim.

  • Útskýra og ræða um sjálfbærni, sjálfbæra þróun, náttúru, umhverfi, heilbrigði og velferð á lýðræðislegan og fordómalausan hátt.

  • Tengja þætti jarðfræðinnar við daglegt líf, eigið heilbrigði og umhverfi.

  • Lesa landfræðilegar upplýsingar úr kortum.

  • Lýsa hreyfingu hluta og áhrifum þyngdaraflsins.