SAGA2MS05

Mannkynssaga 1789-2000

  • Einingar5

Mannkynssaga frá frönsku byltingunni til nútímans. Farið verður í afleiðingar frönsku byltingarinnar, Napóleonsstyrjaldirnar og áhrif þeirra, sögu 19. aldarinnar og iðnbyltinguna, þróun stjórnarfars og breytingar sem verða við stofnun nýrra ríkja í öðrum heimsálfum. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar.…

  • Mannkynssaga frá frönsku byltingunni til nútímans.
  • Farið verður í afleiðingar frönsku byltingarinnar, Napóleonsstyrjaldirnar og áhrif þeirra, sögu 19. aldarinnar og iðnbyltinguna, þróun stjórnarfars og breytingar sem verða við stofnun nýrra ríkja í öðrum heimsálfum.
  • Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist. Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, þar af a.m.k. eitt stórt hópverkefni.
  • Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.

Námsmat byggir á lokaprófi og verkefnum, smærri og stærri sem nemendur vinna yfir önnina.

SAGA1FM05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Nokkrum afmörkuðum skeiðum sögunnar með tilliti til ýmissa sviða hennar svo sem: menningar, hugarfars, stjórnmála, einstaklinga, samfélags, tækni og vísinda.

  • Framþróun í okkar heimshluta síðustu aldir og tengslum hans við aðrar heimsálfur og helstu þáttum í sögu tuttugustu aldar.

  • Fjölbreytileika heimilda.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Koma á framfæri þekkingu sinni og skilningi á sögulegri þekkingu.

  • Vinna sjálfstætt sem og í hópum að gerð fjölbreyttra heimildaverkefna.

  • Lesa og túlka texta, kort, töflur, gröf og myndir frá mismunandi tímaskeiðum.

  • Vinna sjálfstætt sem og í hópum að gerð fjölbreyttra heimildaverkefna.

  • Meta gildi ólíkra heimilda.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Velta fyrir sér ólíkum sögulegum skýringum, taka þátt í skoðanaskiptum og meta ólík sjónarhorn sögulegra álitamála.

  • Meta söguleg fyrirbæri út frá forsendum hvers tíma og sjá tengsl þeirra við nútíma.

  • Rýna í heimildir, vinna úr þeim og leggja á þær gagnrýnið mat.

  • Beita upplýsingatækni í þekkingarleit sinni.

  • Meta gildi vettvangsskoðunar út frá skynrænum upplifunum.

  • Njóta lista, menningar og samfélagsumræðu og tengja það sögulegri þekkingu sinni.